Frétt

Frétt

Ríkið

Drepfyndnir sketsaþættir frá hinum sömu og færðu okkur Fóstbræður, Svínasúpuna og Stelpurnar. Þættirnir gerast á skrifstofu, á ansi óræðum og vægast sagt hallærislegum tíma. Þar er allt verulega kjánalegt; húsgögnin, vinnutækin, klæðaburðurinn, hárgreiðslan og skeggið. Sérstaklega er það þó starfsfólkið sjálft, skrifstofufólkið, sem er rækilega skrautlegt þótt það virki ofurvenjulegt á yfirborðinu. Í þáttunum er gert grín að öllu sem grín er gerandi að, samskiptum kynjanna, undarlegu tómstundargamni og vinnustaðarrómantíkinni. Hér er því hið svokallaða vinnustaðargrín allsráðandi. Með  aðalhlutverk í þáttaröðinni fer pottþétt blanda af yngri og eldri leikurum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa grínið í blóðinu.

 

Aðalhlutverk : Þorsteinn Bachmann, Halldóra Geirharðsdóttir, Sveppi, Víkingur Kristjánsson,

Elma Lísa Gunnarsdóttir, Auðunn Blöndal

Leyfð fyrir alla aldurshópa

Íslenskt tal

Útgáfudagur : 26. Nóvember

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli