Frétt
Mika 5000
Breski/líbanski tónlistarmaðurinn Mika hefur slegið svo sannarlega í gegn á Íslandi. Platan hans "Live In Cartoon Motion" hefur selst í 5.000 eintökum hér á landi.
Þetta gerir plötuna að annarri söluhæstu plötu ársins (á eftir Ladda) og langsöluhæstu erlendu plötu ársins. Hver stórsmellurinn á fætur öðrum hefur verið í taumlausri spilun í útvarpi frá því platan kom í verslanir í febrúar síðastliðinn. "Grace Kelly", "Relax, Take It Easy", Lollipop", "Love Today" og nú síðast "Big Girl, You Are Beautiful". Sem stendur er "Life In Cartoon Motion" söluhæsta platan í Evrópu, sex mánuðum eftir að hún kom út.
Minni á tónleikana "Live From London" með Mika í sjónvarpinu (RÚV) laugadaginn 11 ágúst kl. 23:45