Frétt

Frétt

Nýjasta plata Buff er komin út

Nýjasta plata Buff er komin út og er hún samnefnd sveitinni. Um er að ræða 11 laga plötu með þessari vinsælu hljómsveit en hún inniheldur lög eins og Núna mun ég vaka, Þakklæti, Í gær og Enginn nema þú. Hafa öll þessi lög slegið í gegn og er lagið Enginn nema þú eitt mest spilaða lag landsins í dag. Platan var að mestu tekin upp á litlum sveitabæ á Jótlandi í Danmörku í janúar og svo hafa meðlimir Buffsins verið að vinna hana í smáskömmtum hér heima. Er þetta þriðja plata þeirra félaga. Liðsmenn Buff eru Bergur Geirsson, Einar Þór Jóhannsson, Hannes Heimir Friðbjarnarson, Pétur Örn Guðmundsson og Stefán Örn Gunnlaugsson.

 

Hljómsveitin mun halda útgáfutónleika á Nasa 20.nóvember sem og koma fram á samstöðutónleikunum í Laugardalshöll næsta laugardag.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli