Frétt

Frétt

Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput (CD+DVD)

Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput
Í Höllinni á þorra 2008 (CD+DVD)
Útgáfudagur: 11. nóvember

 

Upptaka frá frábærum tónleikum sem haldnir voru í Laugardalshöllinni 23. febrúar fyrr á þessu ári. Öll helstu lög Þursa í stórkostlegum flutningi Þursa og Caput hópsins. Í pakkanum er geislaplata með 16 lögum frá tónleikunum og einnig fylgir með mynddiskur sem inniheldur tónleikana í heild sinni. Í tilefni tónleikanna var gefinn út kassi með heildarsafni Þursanna og var kassanum einkar vel tekið, bæði af gagnrýnendum sem og aðdáendum Þursa. Öll hönnun kallast á við svarta kassann og eru einkar glæsilegar en umbúðirnar eru rauðar að lit.

 

Úr inngangi Egils Ólafssonar sem fylgir bæklingi plötunnar.

 

Það var strax ljóst að endurvakningin fæli í sér mikla forvinnu, sem í fyrstu lág í því að skrifa tónlistina upp - þökk sé Sibeliusar-forritinu, sem undirritaður átti gott samstarf við.  Stóran hluta laganna útsetti undirritaður, en einnig voru fengnir til starfans fyrirtaks fagmenn og tónsmiðir, sem voru; Tatu Kantoma, Lárus H. Grímsson, fyrrum liðsmaður sveitarinnar, Haukur Tómasson og Samúel Örn Samúelsson, hér eru þeim færðar þakkir fyrir góða vinnu. 

 
Þá tóku við strangar æfingar Þursa frá september miðjum 2007, við vildum ná í gamla hljóminn og festa aftur í minni það sem einkenndi tónlistina. Til liðs við okkur, í stað Kalla heitins Sighvats, fengum við öflugan liðsauka, sem var Eyþór Gunnarsson.  Hann reyndist okkur betur en vel og kunnum við honum  bestu þakkir fyrir næmt innsæi og ómetanlegt framlag.  Þá kom Ragnheiður Gröndal og söng með okkur eitt lag, hennar músíkalitet er alltaf
hrífandi.

 

Þrjátíu ár er nokkuð langur tími, sérstaklega þegar hann dekkar tímann sem líður frá því að maðurinn er nýorðinn fullorðinn og þar að hann verður miðaldra.  Nú verður að segjast sem er; að meðlimir Þursaflokksins eru allir vel á sig komnir þó þeir nálgist nú óðfluga sextíu árin í aldri og það þori ég að fullyrða, að ef Karl heitinn Sighvatsson hefði átt lengri lífdaga, hefði hann ekkert gefið okkur hinum eftir í þeim efnum, því sá maður var fæddur æskumaður og hélt sig við þrótt af því tagi næstum fjörtíu árin, sem hann lifði – hans er sárt saknað, þó að við hefðum merkt hans viðveru á tónleikunum í Höllinni þetta febrúarkvöld 2008.

 

Það var hugmynd Þórðar, gítarleikara að við fengjum Caput hópinn með okkur.   Eftir á má segja; að þar hafi hans mat verið fullkomlega rétt.  Tónlistinni hæfði ekki voldug strengjasveit, eins og tilheyrir sinfóníuhljómsveitum og hitt vóg ekki síður, að margir hljóðfæraleikara Caput, þekktu til Þursatónlistarinnar, höfðu alist upp við ósköpin. Það sama á við um stjórnandann, Guðna Franzson, fyrir utan að þekkja efnið, er Guðni einstaklega músíkalskur og opinn tónlistarmaður, hann var því kjörinn til að stjórna öllu saman.  Caput hópnum með Guðna í fylkingarbrjósti, er hér með þakkað gott samstarf.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli