Frétt
BOND Í BÍÓ!!!
Daniel Craig snýr aftur sem 007 í Quantum of Solace 22. myndinni um njósnari hennar hátignar en hann fór á kostum í hinni mögnuðu Casino Royale sem blés löngu tímabæru lífi í þennan frábæra myndaflokk. Í fyrsta sinn í sögu Bond myndanna er beint framhald á milli Casino Royale og Quantum of Solace og hefst söguþráður nýju myndarinnar örfáum mínútum eftir að sú síðasta endaði. Myndin er frumsýnd í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og á Selfossi og í Keflavík og enginn má láta þessa frábæru spennumynd í lífseigasta kvikmyndabálki sögunnar framhjá sér fara.
Titillinn, eins og persóna Bond, er flókinn og athyglisverður á mörgum sviðum. Titillinn er að finna í smásagnasafni Ian Fleming´s, FOR YOUR EYES ONLY (1960) og því má segja að titillinn sýni Bond seríunni ákveðna virðingu. Bein þýðing er : “a small measure of comfort amidst sorrow or disappointment” og tengist því tilfinningalegu ástandi James Bond. Það styrkir einnig endurkomu Daniel Craigs hjá aðdáendum að hann sé mættur aftur sem raunverulegri og flóknari Bond eins og hann sýndi af svo mikilli snilld í síðustu mynd.
Daniel Craig í viðtali við Just a Minute With Daniel Craig – Yahoo News