Frétt

Frétt

Bubbi og Stórsveit Reykjavíkur

Á morgun þriðjudaginn 4.nóvember kemur út upptaka frá tónleikum Bubba Morthens og Stórsveitar Reykjavíkur sem fram fóru 4. og 5 janúar á þessu ári. Um er að ræða bæði mynd- og geisladisk (CD/DVD). Hugmyndina að tónleikunum fékk Bubbi og hafði hann gengið með hana í ár áður en hann hafði samband við Stórsveitina sem sagði strax já takk og var hafist handa að útsetja lög Bubba fyrir Stórsveitina. Alls rötuðu 17 lög á þessa útgáfu.

 

Ekki voru það bara lögin hans Bubba sem voru í sparifötunum á tónleikunum því að kóngurinn sjálfur Bubbi Morthens kom fram í hvítum smóking þessi kvöld.  Það var Þórir Baldursson sem færði mörg af bestu lögum Bubba í stórsveitartarbúning með frábærum árangri, eins og heyra má á þessari vönduðu útgáfu.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli