Frétt
Hér er draumurinn
Heimildamyndin „Hér er draumurinn“ eftir Jón Egil Bergþórsson verður frumsýnd í Háskólabíói föstudaginn 31. október og verður sýnd þar alla helgina. Myndin, sem er í fullri bíómyndalengd, fjallar um Sálina hans Jóns míns sem fagnar 20 ára starfsafmæli í ár. Í myndinni er farið yfir feril sveitarinnar með nýjum viðtölum við hljómsveitarmeðlimi og einnig þá sem fylgt hafa sveitinni í gegnum tíðina. Gríðarlega fjölbreytt myndefni frá ferli sveitarinnar var notað við vinnslu myndarinnar enda er mikið myndefni til ásamt gömlum viðtölum sem kom að góðum notum.
Þann 10. nóvember koma svo út þrjár útgáfur í tilefni af 20 ára afmæli vinsælustu hljómsveitar landsins. Þrefaldur CD með 45 vinsælustu lögunum, tvöfaldur DVD-diskur með 90 mínútna heimildarmyndinni og öllum myndböndum sveitarinnar. Loks kemur út viðhafnarútgáfu í takmörkuðu upplagi með öllu efninu af hinur tveimur útgáfunum og aukaplötu með 15 tónleikaupptökum ásamt auka DVD-diskur með 25 völdum tónleikaupptökum og heimildamyndinni í lengri útgáfu. Í viðhafnarútgáfunni eru samtals 7 diskar, 4 geislaplötur og 3 DVD-mynddiskar og 92 síðna bæklingur þar sem rakin er saga Sálarinnar í máli og myndum..