Frétt

Frétt

Ávextir, álfar, sjófiskar og spýtukall

Fyrir 10 árum samdi Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson í fyrsta sinn tónlist í söngleik fyrir börn. Það var Ávaxtakarfan en söguna samdi Kristlaug María Sigurðardóttir. Ávaxtakarfan sló í gegn svo um munaði og var raunar sett upp aftur nokkrum árum síðar. Tónlist við söguna um Benedikt búálf fylgdi svo í kjölfarið nokkrum árum síðar og naut sú sýning einnig mikilla vinsælda. Hafið bláa var svo sett upp í Austurbæ árið 2006 og hlaut ma Grímuverðlaunin. Gosi var svo frumsýndur í fyrra í Borgarleikhúsinu en sýningum er einmitt að ljúka nú um mundir eftir að hafa verið í fullum gangi í heilt ár.

 

Nú er komin út sérlega skemmtileg askja sem ber heitið Ávextir, álfar, sjófiskar og spýtukall sem er að sjálfsögðu tilvísun í heiti þessara söngleikja. Í öskjunni eru sem sagt allar plöturnar sem komu út á sínum tíma með tónlist og sögulestri hverrar sýningar. Hafið bláa kemur þar raunar út í fyrsta sinn á geislaplötu. Sérstaklega eigulegur gripur sem heldur hlustendum á öllum aldri hugföngnum frá byrjun til enda.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli