Frétt

Frétt

Jólagestir Björgvins 6.des

Björgvin Halldórsson og félagar hafa ákveðið að láta ekki deigan síga og blása til stórkostlegrar skemmtunar laugardaginn 6. desember í Laugardalshöllinni. Verða þá haldnir í annað sinn stórtónleikarnir Jólagestir Björgvins, en þeir slógu rækilega í gegn í fyrra þegar þrjár hallir seldust upp og tæplega 10,000 manns skemmtu sér konunglega.

 

Eins og Björgvins er von og vísa verður umgjörðin einkar glæsileg og fram kemur sannkallað stórskotalið listamanna; landslið söngvara og hljóðfæraleikara, strengjasveit, karlakór og barnakór. Óhætt er að lofa ógleymanlegum menningarviðburði.



"Umgjörðin var sem fyrr sagði glæsileg, tónlistarflutningurinn óaðfinnanlegur, og dagskráin rann svo fumlaust áfram að tveir tímar liðu hjá eins og hendi væri veifað....Jólagestir Björgvins Halldórssonar eru einhverjir allra veglegustu tónleikar sem undirritaður hefur séð."
- Atli Bollason, Morgunblaðið, desember 2007



Nú sem endranær verða útsetningar í höndum Þóris Baldurssonar og Björn G. Björnsson sér um sviðssetningu og handrit.

Landslið listamanna

Gestasöngvararnir verða ekki af verri endanum og má fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi álíka stórskotalið komið fram á einum tónleikum:

 

Eyjólfur Kristjánsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Helgi Björns
Krummi & Daníel Ágúst
Laddi
Páll Óskar & Monika
Raggi Bjarna
Sigga Beinteins
Stefán Hilmarsson
Svala Björgvins

Sérstakur gestur er svo enginn annar en hinn eini og sanni Kristján Jóhannsson; þekktasti tenór sem Ísland hefur alið og einn fremsti óperusöngvari samtímans.

 

Miðasala hefst mánudaginn 3. nóvember kl. 10:00

 


Miðasala á Jólagesti Björgvins 2008 hefst mánudaginn 3. nóvember kl. 10:00 á Miði.is og öllum sölustöðum Miða.is.

 

Miðaverði verður haldið í lágmarki og er það sama og í fyrra, hvað varðar A og B svæði. Tveimur svæðum er bætt við, A+ og C svæði og er meiningin með þeim að auka þjónustuna við tónleikagesti og gefa þeim aukið val og skýrara um staðsetningu, en eingöngu er um númeruð sæti að ræða.


Verðin og svæðaskipting er sem hér segir:
A+ svæði: 9.900 kr.
A svæði: 7.900 kr.
B svæði: 6.900 kr.
C svæði: 4.900 kr.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli