Frétt

Frétt

The Brothers Solomon

Þegar faðirinn liggur fyrir dauðanum og óskar þess að fá að sjá fyrsta barnabarnið áður en hann gengur á fund skapara síns er það hægara sagt en gert fyrir bræðurna Solomon. Þeir hafa alist upp á norðurskautssvæðinu lausir við félagsskap kvenna og kunna ekki að tala við konur, hvað þá heldur að telja einhverja á að eignast barn með sér. En framtíð fjölskyldunnar hvílir nú í þeirra höndum og bræðurnir tveir leggja af stað í leiðangur til að “búa til barn fyrir pabba”

 

Aðalhlutverk : Will Arnett, Will Forte

Lengd : 93 mínútur

Leyfð fyrir alla aldurshópa

Íslenskur texti

Útgáfudagur : 31. mars

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli