Frétt
Moliere – Græna Ljósið
Bráðfyndin frönsk stórmynd um gamanleikskáldið fræga Moliére, sem hefur verið kallaður Shakespeare Frakklands.
Árið er 1644 og Moliére er aðeins tuttugu og tveggja ára. Hann er skuldum vafinn og hundeltur af innheimtumönnum. Hann þrjóskast við að setja á svið harmleiki, enda eru þeir óneitanlega ekki hans sterka hlið. Dag einn koma óþolinmóðir lánadrottnar honum bak við lás og slá, og þá hverfur hann.
Aðalhlutverk : Roman Duris, Edouard Baer, Laura Morante, Fabrice Luchini, Ludivine Sagnier.
Lengd : 120 mínútur
Leyfð fyrir alla aldurshópa
Íslenskur texti
Útgáfudagur : 31. mars