Frétt

Frétt

Persepolis – Græna Ljósið

Teiknimynd byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna.

Marjane er aðeins 9 ára gömul þegar íslamska byltingin á sér stað í Íran og strangtrúaðir taka öll völd, neyða blæjur á konur og fangelsa þúsundir. Hún er hreinskilin, bráðþroska og eldklár og henni tekst að leika á “siðgæðis verðina”. Hún uppgötvar pönkið, Abba og Iron Maiden. En þegar frændi hennar er tekinn af lífi á ógnvænlegan hátt og sprengjurnar dynja á Tehran í stríðinu við Írak, smeygir óttinn sér inn í líf hennar eins og allra annara í landinu.

Myndin hefur farið mikla sigurför um heiminn. Á Evrópsku kvikmyndaverðlaunum var hún valin besta mynd ársins, á Golden Globe hátíðinni besta erlenda myndin, í Cannes fékk hún verðlaun dómnefndar og svo mætti lengi telja. Nú er myndin tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta mynd ársins.

 

Lengd : mínútur 95

Bönnuð innan 14 ára

Íslenskur texti

Útgáfudagur : 31. mars

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli