Frétt
Terror’s Advocate – Græna Ljósið
Ögrandi heimildarmynd eftir Barbet Schroeder um Frakkann Jacques Vergés, hinn mjög svo umdeilda lögfræðing sem hefur unnið sér það til frægðar að verja alla verstu skúrka heims, en á meðal skjólstæðinga hans má nefna Pol Pot, Mao Tse Tung, Slobodan Milosevic, Saddam Hussein, Carlos the Jackal og Klaus Barbie.
Hvað er það sem rekur þennan mann áfram? „Illska heillar mig“ segir hann. „því stærri sem ásakanirnar eru því áhugasamari er ég.“ Vergés er á því að hugtakið glæpur sé það sem skilur okkur að frá dýrunum. Hann segist finna til með hinum ásökuðu í þessum heimi.
Er Jacques Vergés samviska heimsins eða skuggavera? Er hann stjórnsamur, siðlaus eiginhagsmunaseggur eða tilfinningasamur verjandi mannlegrar reisnar? Hér er á ferðinni ógleymanleg heimildarmynd um mann sem á sér engan líkan.
Aðalhlutverk :
Lengd : 135 mínútur
Bönnuð innan 12 ára
Íslenskur texti
Útgáfudagur : 31. Mars