Frétt
Family Guy: Blue Harvest
Griffin-fjölskyldan fer að sjálfsögðu á kostum í mögnuðustu vísindaskáldsögu allra tíma. Peter er stórfenglegur í hlutverki Han Solo, Lois hefur vissulega konunglegt yfirbragð sem Leia prinsessa, Chris nær göngulagi Loga geimgengils fullkomlega, Brian ýfir feldinn í hlutverki Chewbacca og Stewie stefnir að því að verða hæstráðandi í alheiminum sem afar smávaxinn en engu að síður stórhættulegur Svarthöfði.
Ótrúlega snjallir brandarar og frumleg háðsdeila sem engir aðdáendur Family Guy mega missa af.