Frétt

Frétt

Sálin hans jóns míns - Vatnaskil komin út!

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fagnaði mánudaginn 10. mars 20 ára afmæli sínu. Hún er orðin ein lífseigasta hljómsveit Íslandssögunnar og er án tvímæla einhver sú farsælasta sem komið hefur fram hérlendis. Tónleikar Sálarinnar hafa jafnan verið fjölsóttir og hefur sveitin sent frá sér 12 plötur sem geyma ógrynni vinsælla laga, en þær eru fáar sveitirnar sem eiga viðlíka magn vinsælla laga.

 

Á þessum tímamótum gefur Sena út allar plötur Sálarinnar í tveimur veglegum öskjum og hefur útgáfan hlotið nafnið „Vatnaskil“. Öskjurnar innihalda allar tólf plötur Sálarinnar auk þeirrar þrettándu, sem hýsir „munaðarleysingja“, þ.e. lög sem komið hafa út á ýmsum safnplötum í gegnum árin en hafa ekki átt samastað á breiðskífum sveitarinnar. Hefur þrettánda platan hlotið nafnið „Arg“ og kallast á við plötuna „Garg“, sem var samskonar útgáfa er út kom árið 1992. Auk tónlistarinnar geyma öskjurnar ýmsan fróðleik um Sálina og fjölda ljósmynda.

 

Sálin hans Jóns míns
Vatnaskil
1988-  2008
Kassi 1 (6 CD)
1. Syngjandi sveittir
2. Hvar er draumurinn
3. Sálin hans Jóns míns
4. Garg
5. Þessi þungu högg
6. Sól um nótt

 

Sálin hans Jóns míns
Vatnaskil
1988-  2008
Kassi 2 (7 CD)
1. 12. ágúst ’99
2. Annar máni
3. Logandi ljós
4. Sálin & Sinfó - Vatnið
5. Undir þínum áhrifum
6. Sálin & Gospel – Lifandi í Laugardalshöll
7. Arg

 

Lagalisti fyrir safnplötuna Arg:
1. Svartir fingur (16.05.1983)
2. Þú fullkomnar mig
3. Lestin er að fara
4. Englar
5. Stjörnur
6. Á einu augabragði
7. Allt eða ekki neitt
8. Orginal
9. Undir sólinni
10. Of góð
11. Gríma

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli