Frétt
Pro E. Soccer 2008
Aðalatriðið í PES 2008 er gervigreind sem aðlagar sig að spilurum leiksins, en þetta kerfi er kallað Teamvision. Kerfið er einungis notað í þessum leik og er í raun vel forrituð gervigreind sem lærir inná spilarann og aðlagar sig að spilastíl hvers og eins. Þetta gerir það að verkum að leikurinn lærir af mistökum og getur sífellt þróað sig í leikaðferðum og taktík.
Pro Evolution Soccer serían hefur verið þekkt í gegnum tíðina fyrir gott flæði í spilun, hátt raunveruleikastig og nú bætisti Teamvision við, ásamt fjölda annarra breytinga á spilun leiksins. Allt frá fyrstu útgáfu leiksins árið 1996 hefur boltinn verið sér eining, en ekki fastur við leikmennina og tímasetning skotanna algjörlega í höndum spilarans, en nýja gervigreindin tryggir nú að varnarmenn reyna að loka svæðum betur og blokka skot andstæðingsins. Sama gildir um sendingar, þar sem leikmenn nýta betur svæðin til að gefa á samherjana. Aðrar stýringar leiksins hafa verið bættar til muna og geta spilarar nú rakið boltann á fleiri vegu og notað fleiri trikk til að komast framhjá varnarmönnum.
Teamvision kerfið mun koma við sögu hvar sem er í Pro Evolution Soccer 2008 sérstaklega inná vellinum þar sem allt hefur verið tekið í gegn og fínstillt til að skapa jafnvægi sem að er nauðsynlegt í knattpsyrnuleik. Aukaspyrnur hafa verið bættar, og geta spilarar nú ákveðið hversu margir leikmenn eru í varnarveggnum og hvar hann er staðsettur. Einnig geta spilarar valið úr fleiri möguleikum þegar taka á aukaspyrnu til að nýta betur þá hæfileika sem í liðinu er.
Þetta er í fyrsta skipti sem leikurinn kemur út á PLAYSTATION®3, og í annað skiptið á Xbox 360, en þessar útgáfur ásamt PC útgáfunni eiga eftir að marka djúp spor í gæðum. Öll smáatriði varðandi leikmenn eru í leiknum og skartar hann nú fullkomnum hreyfingum á andliti leikmanna og háskerpu grafík "next gen" vélanna er hér nýtt til fullnustu.
"Við höfum skoðað mjög vel hvað það er sem hefur gert Pro Evolution Soccer leikina svona vinsæla og einnig velt mikið fyrir okkur hver eru næstu skref," segir Shingo "Seabass" Takatsuka, höfundur seríunnar og framleiðandi PES 2008. "Með nýja Teamvision kerfinu tökum við leikinn á nýtt stig. Hreyfingar leikmanna sem ekki eru með boltann hafa verið bættar og spilarar fá meiri stjórn yfir hlutunum, þetta ásamt öllu öðru gerir þessa útgáfu leiksins þá bestu hingað til. Við virkilega vonum að öllum eigi eftir að líka þessi þróun á leiknum. Ég get lofað ykkur því að biðin hefur verið þess virði."