Frétt

Frétt

The Descendants frumsýnd á föstudag

Þá dynur sá harmleikur yfir að eiginkona hans, Elizabeth, slasast svo alvarlega á sjóskíðum að hún liggur nú í dái og eru litlar líkur á að hún muni nokkurn tímann ná sér. Matt, sem hingað til hefur reitt sig á Elizabetu, er nú skyndilega orðinn einstæður faðir og kemst að því von bráðar að ef til vill þekkir hann ekki dætur sínar tvær eins vel og hann hélt. Þess utan verður hann fyrir öðru áfalli þegar hann kemst að því að Elizabeth hafi verið honum ótrú og ætlað að skilja við hann og allir virðast hafa vitað það nema hann...

Frumsýnd í Smárabíói og Háskólabíói

Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna. Vann sem besta myndin í dramaflokki og George Clooney sem besti leikari ársins. Myndin er á yfir 150 topp 10 listum yfir bestu myndir ársins!

Á Rottentomates.com er meðaleinkunn myndarinnar hvorki meira né minna en 89% og er fáheyrt að gagnrýnendur séu jafn sammála um ágæti kvikmynda.

* * * * 1/2
"Hjartnæm, fyndin, frábærlega skrifuð og einstaklega vel leikin. George Clooney hefur sjaldan verið betri og ég veit ekki betur en að það sé heilmikið sagt."
T.V. Kvikmyndir.is/Séð og Heyrt

"Sérlega snjöll og ánægjuleg gamanmynd. Góð skemmtun frá upphafi til enda".
Joe Morgenstern, The wall Street Journal

"Enn einn fagurlega skorinn gimsteinn. Beitt, fyndin, stórtæk, áhrifarík..."
Owen Gleiberman, Entertainment Weekly

Besta mynd ársins
AFI Awards 2011

Besta mynd ársins
Los Angeles Film Critics Association

Besti leikari ársins -George Clooney
Screen Actors Guild

Besti leikari ársins -George Clooney
National Board of Review

Ein af 10 bestu myndum ársins
National Board of Review

Leikstjóri: Alexander Payne.
Handrit: Alexander Payne og Nat Faxon.
Aðalhlutverk: George Clooney, Shailene Woodley og Amara Miller.

IMDB
Heimasíða myndarinnar
The Descendants á midi.is
Trailer

Þeir sem eru vinir Senu á Facebook geta átt möguleika á því að vinna miða á myndina.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli