Starfssemin
Um fyrirtækið:
Sena er eitt fjölbreyttasta og stærsta afþreyingarfyrirtæki á Íslandi.
Kjarnastarfsemin í gegnum tíðina hafa falist í tónlistarútgáfu og dreifingu kvikmynda og tölvuleikja. Á síðustu árum hefur Sena fært út starfsemina með útgáfu bóka og leikfanga og staðið fyrir margs konar viðburðum með frábærum árangri. Sena er eigandi D3 sem dreifir margs konar afþreyingu í gegnum netið og farsíma og rekur Tónlist.is sem er stærsti tónlistarvefur landsins. Auk þess rekur Sena kvikmyndahúsin Smárabíó og Háskólabíó í Reykjavík og Borgarbíó á Akureyri.
Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um starfsemi innan einstakra deilda Senu.
Tónlist
Tónlistardeild Senu er stærsti dreifingaraðili innlendrar og erlendrar tónlistar á íslenskum tónlistarmarkaði, með um 65% markaðshlutdeild. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir Universal, Warner, EMI og Sony/BMG og gefur út að meðaltali 50 til 70 nýja íslenska geisladiska á ári. Úrvalið er gífurlega fjölbreytt og spannar alla tónlistarflóruna frá klassískri tónlist í rokk, popp og barnatónlist.
Auk þess á Sena að stórum hluta höfundaréttinn að eldri íslenskri tónlist og hefur því sérhæft sig í útgáfu veglegra safndiska og viðhafnarútgáfu á íslenskum tónlistarperlum.
Tölvuleikir
Sena dreifir tölvuleikjum frá flestum stærri tölvuleikjaframleiðendum í heimi eins og Electronic Arts, Sony Computer Entertainment, Konami, Activision, Take 2 Interactive, THQ, Atari, Sega and Vivendi Games. Sena er jafnframt umboðsaðili fyrir alla PlayStation-leiki og vörur.
Viðburðir
Sena hóf skipulagningu tónleika, leikrita og söngleikja á Íslandi árið 2006 með kaupum á fyrirtækjum á því sviði og hefur síðan þá skipulagt stærstu tónlistarviðburði á landinu, bæði erlenda sem og innlenda. Fyrirtækið skipuleggjur aðallega stærri viðburði en hefur jafnframt staðið fyrir uppsetningu leikrita sem hafa notið fádæma vinsælda og skipulagði tvo stærstu tónlistarviðburði á Íslandi.
Meðal fyrri viðburða:
Alice Cooper, Bob Dylan, Chris Cornell, Deep Purple, Diana Krall, Eddie Izzard, James Blunt, Jarvis Cocker, Joe Cocker, José Carreras, Josh Groan, JS Ballet, Katherine Jenkins, Katie Melua, Kiri Te Kanawa, Lou Reed, Marianne Faithfull, Patti Smith, Ray Davies, Sissel Kirkebo, Snoop Dogg, Sugababes, The Shadows, Uriah Heep, Van Morrison.
Sena sá ennfremur um að setja upp vinsælasta leikrit allra tíma hérlendis, Laddi 6-tugur, sem og Hellisbúann og Buddy Holly söngleikinn.
Kvikmyndahús
Sena rekur þrjú hágæða kvikmyndahús.
Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús á Íslandi og jafnframt það vinsælasta, en það var opnað árið 2000. Það er á allan hátt fyrsta flokks kvikmyndahús, búið hágæða stafrænni þrívíddartækni í hverjum sal, en þar eru jafnframt risastór sýningatjöld og bestu hljóðkerfi sem völ er á. Í kvikmyndahúsinu eru fimm salir sem taka yfir 1.000 manns í sæti. Smárabíó er staðsett í stærstu og vinsælustu verslunarmiðstöð landsins svo að bíógestir hafa aðgang að bílakjallara með yfir 600 bílastæðum, sem kemur sér vel á veturna.
Borgarbíó á Akureyri er búið tveimur bíósölum með rúmlega 300 sætum. Það er eitt af fáum kvikmyndahúsum á landsbyggðinni sem var opnað fyrir árið 1950 og er því eitt af elstu kvikmyndahúsum landsins.
Þann 1. maí árið 2007 tók Sena við rekstri Háskólabíós og lét í framhaldi af því gera breytingar á húsnæðinu. Þar eru nú fimm bíósalir með samtals 840 sætum og eru þeir allir með fullkomnasta tæknibúnaði sem völ er á.
Kvikmyndir
Sena er með tæplega 50% markaðshlutdeild á Íslandi í dreifingu kvikmynda og er umboðsaðili fyrir fyrirtæki á borð við 20th Century Fox, Sony Pictures, Focus Features og The Weinstein Company, auk þess sem fyrirtækið kaupir mikið af óháðum kvikmyndum. Sena er meðframleiðandi margra íslenskra kvikmynda og eigandi Græna ljóssins, eina dreifingaraðilans á Íslandi sem sérhæfir sig í dreifingu á óháðum og listrænum kvikmyndum frá öllum heimshornum.
Bækur
Árið 2009 hóf Sena útgáfu bóka, bæði erlendra og innlendra, og gaf sama ár út fjórar bækur. Árið 2010 gaf fyrirtækið út fimm bækur og er óhætt að segja að allar bækurnar hafi notið mikilla vinsælda. Sena gefur út skáldsögur, bækur almenns eðlis, ævisögur, handbækur, barnabækur og sjálfshjálparbækur. Margar þeirra hafa verið óhemju vinsælar og stefnt er að því að stækka bókaúgáfuna á næstu árum.
Leikföng
Árið 2010 gerðist Sena einn helsti dreifingaraðili leikfanga á Íslandi, með kaupum á fremstu leikfangaheildsölu landsins og býður upp á mikið úrval af gæðaleikföngum fyrir börn á öllum aldri. Sena sér m.a. um dreifingu Playmobil, Mattel, Tomy, Ke Mathiasen, Canenco, Playbox, Dantoy, Unice og Happy People.