Með því að nota nýju grafíkvélina, Frostbyte 2, tekst framleiðendum Battlefield 3 að setja leikinn framar öðrum hvað varðar spilun og grafík. Leikmenn geta hreinlega sprengt allt í loft upp, en leikurinn inniheldur haug af stórbrotnum bardögum. Leikmenn fara í hlutverk hermanna sem þurfa að vaða í hvern bardagann á fætur öðrum og er sögusviðið meðal annars París, Teheran og New York.
Leikurinn inniheldur:
. Frostbyte 2 grafíkvélina, en með henni tekur leikurinn lýsingu, hreyfingar, eyðileggingu og hljóð á annað stig. Með þessari nýju grafíkvél fara leikmenn í ferð sem er uppfull af hasar og atriðum sem aldrei hafa áður sést í tölvuleik.
. Finndu fyrir bardaganum, en í Battlefield 3 finna leikmenn nánast fyrir byssukúlunum og sprengingunum. Þitt hlutverk verður að draga særða liðsmenn í skjól og beita byssum við allskyns aðstæður. Grafík leiksins er svo raunveruleg að leikmenn eiga eftir að upplifa leikinn á mjög sérstakan máta.
. Fleiri farartæki en nokkru sinni fyrr, en í Battlefield 3 fá leikmenn að taka í helling af farartækjum og eru þar á meðal þotur, þyrlur, skriðdrekar, jeppar og fleira.
. Barist í borgum. Í Battlefield 3 eru bardagarnir margir hverjir inní borgum og inniheldur leikurinn fjölmargar borgir í Bandaríkjunum, Mið-austur löndum og Evrópu.
|