Innlend útgáfa
Gullvagninn - Björgvin sextugur
Þann 16. apríl síðastliðinn varð Björgvin Halldórsson sextugur og var áfanganum fagnað á sjálfri afmælishelginni með þremur uppseldum tónleikum í Háskólabíó þar sem mun færri komust að en vildu. Björgvin fékk til liðs við sig valinkunna hljóðfæraleikara og stórsöngvarana Jóhönnu Guðrúnu, Sigríði Thorlacius, Mugison, Krumma og Siggu Beinteins. Hópurinn lék við hvern sinn fingur á mjög eftirminnilegum tónleikum og voru allir helstu smellirnir frá ótrúlegum rúmlega 40 ára ferli Björgvins fluttir með tilþrifum, við mikinn fögnuð viðstaddra.
KK og Ellen - Jólin
Út er komin önnur jólaplata systkinanna KK og Ellenar Kristjánsdóttur. Fyrri platan, "Jólin eru að koma", kom út 2005 og fékk frábærar viðtökur og má búast við að þessi eigi eftir að fara í spilara margra landsmanna nú um jólin.
"Jólin" er einlæg og falleg jólaplata eins og sú fyrri og bera systkinin djúpa virðingu fyrir þessum þjóðararfi okkar. Flest laganna eru öllum kunn og má meðal annarra nefna lög eins og: Nú er Gunna á nýju skónum, Snæfinnur snjókarl, Jólasnjór, Nóttin var sú ágæt ein, Jólasveinninn minn, Í Betlehem og fl.
KK og Ellen hafa fengið með sér valinkunna hljóðfæraleikara til að leggja sér lið við gerð þessarar frábæru plötu og má þar nefna þá Eyþór Gunnarsson, Guðmund Pétursson og Valdimar Kolbein Sigurjónsson. Þetta er frábær og einlæg jólaplata sem skilar sannri jólagleði inn í hjörtu landsmanna um þessi og mörg komandi jól.
Papar í 25 ár - Jameson
Þann 2. nóvember í ár voru 25 ár síðan hljómsveitin Papar var stofnuð í Vestmannaeyjum. Í upphafi var hún skipuð þremur meðlimum og eingöngu gerð út frá Eyjum. Stofnfélagar voru Páll Eyjólfsson, Georg Ólafsson og Hermann Ingi Hermannsson. Eftir tveggja ára samstarf var ákveðið að flytja í borgina og freista gæfunnar þar. Í kjölfarið bættist svo fjórði meðlimurinn við, Vignir Ólafsson og urðu Papar fljótt ein af alvinsælustu hljómsveitum bogarinnar, sérstaklega á pöbbunum.
Söngdansar og ópusar Jóns Múla
Jón Múli Árnason var einstaklega góður lagasmiður og naut dyggrar aðstoðar Jónasar bróður síns við textagerðina. Flest lögin urðu til í tengslum við fjóra söngleiki og skilaði samvinna þeirra fjölda frábærra söngdansa sem nutu og njóta enn ómældra vinsælda meðal þjóðarinnar.
Sjöunda platan Todmobile komin út
Todmobile gefur nú út sína sjöundu plötu og ber hún einfaldlega nafnið 7, en sú fyrsta, Betra en nokkuð annað, leit dagsins ljós í nóvember 1989. Í kjölfarið fylgdu margar afar vinsælar plötur og lög eins og Pöddulagið, Brúðkapslagið, Tryllt og Stúlkan. Á þessari nýju plötu, þeirri fyrstu í fimm ár, er kynntur til leiks nýr söngvari; Eyþór Ingi Gunnlaugsson en margir muna eftir honum sem sigurvegaranum í Bandinu hans Bubba á Stöð 2 en hann á stórleik á plötunni og syngur fimm lög. Að auki, og eins og áður skipa Todmobile þau Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Andrea Gylfadóttir, Eiður Arnarsson, Kjartan Valdemarsson og Ólafur Hólm auk Benedikts Brynleifssonar sem einnig er nýgenginn til liðs við Todmobile.
Glæsilegur tónleikapakki Helga Björns
Tónleikar Helga Björns frá 17. júní, þar sem hann söng íslenskar dægurperlur ásamt góðum gestum, eru komnir út á cd & dvd
Upptaka frá tónleikum Helga Björns í Hörpu sem haldnir voru á þjóðhátíðardegi Íslendinga síðasta sumar er komin út í veglegum pakka. Tónleikarnir fóru fram í stærsta sal hússins, Eldborg, og var öllu tjaldað til. Útkoman er líka mögnuð upplifun, sem núna er komin út á bæði cd og dvd.
Hugmyndin var að fara vítt og breytt um sviðið og heimsækja íslenskar perlur sem hafa lifað með þjóðinni í langan tíma, sumar í áratugi. Allt eru þetta sígildar perlur sem þó heyrast ekki oft með fullskipaðri hljómsveit, heilli strengjasveit og karlakór. Svo ekki sé talað um þá vinsælu söngvara sem veittu Helga félagsskap í Hörpu.
Friðrik Ómar og Jógvan - Ný barnaplata
Íslensk og færeysk barnalög fyrir börn á öllum aldri er sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu plötu Vinalög sem kom út árið 2009 og var einmest selda plata þess árs. Þessar frændþjóðir styrkja nú bönd sín í gegnum vinsæla tónlist að nýju.
Páll Óskar & Sinfó í Hörpunni á CD og DVD
Páll Óskar var með þeim allra fyrstu til að halda sannkallaða stórtónleika í Hörpunni, þegar húsið opnaði í vor. Hélt hann þar einkar glæsilega ferilstónleika með bestu hljómsveit landsins, Sinfóníuhljómsveit Íslands. Má með sanni segja að þessi þrenning; Páll Óskar, Sinfó og Harpan hafi getið af sér einstakan viðburð og ógleymanlegir stundir hjá þúsundum gesta. Fimm tónleikar seldust upp og miklu færri komust að en vildu. Sérstök viðhafnarútgáfa í takmörkuðu magni fáanleg frá 1. desember