Erlend útgáfa

Erlend útgáfa

Tvær klassískar ballettsýningar í Háskólabíói

13.12.2011.

Sena klassík og Háskólabíó verða með sannkallaða jólaveislu í desember. Boðið verður upp á tvær glæsilegar sýningar sem henta allri fjölskyldunni. Annars vegar verður sýnd uppfærsla Konunglega ballettsins í London á Þyrnirós í beinni útsendingu frá Covent Garden, og hins vegar frá uppfærslu New York City ballettsins á Hnotubrjótinum. Miðasala er hafin á Miði.is og selt er í númeruð sæti. Athugið að Þyrnirós verður eingöngu sýnd einu sinni, fimmtudaginn 15. desember, kl. 19:15 og Hnotubrjóturinn verður sýndur tvisvar. Annars vegar mánudaginn 26. desember (annar í jólum), kl. 16:00, og hins vegar þriðjudaginn 27. desember kl. 19:30. Aðeins 300 miðar eru í boði á hverja sýningu og miðasala er hafin á Miði.is. Athugið að ekki er hægt að bæta við sýningum eða sölum. Selt er í númeruð sæti.

Partípopp komin út!

25.11.2011.

Skotheld safnplata fyrir krakka og unglinga á öllum aldri. Platan inniheldur mörg af vinsælustu erlendu og íslensku lögunum síðustu mánuði. Flytjendur á plötunni eru: Maroon 5 ásamt Christinu Aguilera, Katy Perry, Páll Óskar, Jessie J, Justin Bieber, Ingó ásamt Fjallabræðrum, Bruno Mars, Jón Jónsson, LMFAO, Lady Gaga, The Black Eyed Peas, Steindinn okkar ásamt Matta, Rihanna, Pitbull, Jennifer Lopez, Britney Spears, Jedward og Friðrik Dór.

Rihanna - Talk That Talk

23.11.2011.

Aðeins er rúmt ár síðan Rihanna sendi frá sér plötuna Loud, sem innihélt smelli eins og „Only Girl (In the World)“, „What’s My Name“ og „S&M“. Hér er glæný plata með þessari skærustu stjörnu poppheimsins í dag. Platan inniheldur meðal annars stórsmellinn „We Found Love“.

Pink Floyd - A Foot In The Door : Best Of

23.11.2011.

Ný safnplata með Pink Floyd. Lagalistinn er eins og sjá má magnaður og öll lögin í betri hljómgæðum. Einnig koma út meistarastykkin Dark Side Of The Moon og Wish You Were Here í stórkostlegri endurútgáfu.

Sena kynnir POTTÞÉTT 56

22.11.2011.

Nýjasta safnplatan í Pottþétt röðinni vinsælu er komin út. Á plötunum er að finna flest af vinsælustu lögum dagsins í dag. Á Pottþétt 56 eru 40 lög og þar af eru 22 lög með íslenskum flytjendum. Á plötunni eru 6 lög sem ekki hafa komið út áður og eru það lög með Friðriki Dór, Elín Ey og Pétri Ben, Dísu og Memfismafíunni, Brynjari Má, Berndsen og Bubba Morthens og FM Belfast og Jóhanni Helgasyni. Á meðal annarra íslenskra flytjenda eru: Mugison, Dikta, GusGus, Quarashi, Vicky, Hjálmar, Ingó ásamt Fjallabræðrum, Valdimar, 1860 og Lay Low. Á meðal erlendra flytjenda eru: Coldplay, Chris Medina, The Black Eyed Peas, Jennifer Lopez, Britney Spears, Maroon 5, Katy Perry, Rihanna og Lady Gaga. Pottþétt 56 er 94 Pottþétt platan í Pottþétt útgáfuröðinni sívinsælu.

Justin Bieber með nýja jólaplötu

15.11.2011.

Ástmögur unglingsstúlkna hefur gefið út skothelda jólaplötu, sem faánleg er bæði á CD og með DVD. Platan heitir Under the Mistletoe og smellið á "skoða nánar" til að skoða lagalistann.

Coldplay – Mylo Xyloto

24.10.2011.

Út er komin fimmta plata Coldplay og ber hún nafnið Mylo Xyloto. Að sögn Chris Martin söngvara sveitarinnar er platan þemaplata, að hún er ástarsaga með góðum endi. Upptökustjórn var í höndum Markus Dravs, Daniel Green og Rik Simpson ásamt því að upptökugoðsögnin Brian Eno hjálpaði til við vinnsluna. Síðasta plata sveitarinnar Viva La Vida kom út árið 2008 og fór í 1 sæti breiðskífulista útum allan heim.

Nýja Lady Gaga platan er komin út

26.05.2011.

Glæný plata frá poppdívunni Lady Gaga er komin út. Born This Way er hennar önnur plata og fylgir eftir hinni gríðarlega vinsælu The Fame, sem gerði stormandi lukku útum allan heim og gerði hana að stórstjörnu, enda innheldur sú plata smelli eins og Poker Face, Just Dance, LoveGame, Bad Romance, Alejandro, Paparazzi og fleiri. Born This Way inniheldur meðal annars stórsmellina Born This Way og Judas. Einnig eru löginThe Edge Of Glory og Hair byrjuð að heyrast í útvarpi. Platan er fáanleg í tveimur útgáfum, en önnur útgáfan inniheldur aukadisk með 5 remixum. Smellið á "skoða nánar" til að sjá laga listann.

Hitaðu upp fyrir tónleika ársins!

25.05.2011.

Eagles í Höllinni 9 júni og Magnús og Jóhann hita upp. Hitaðu upp fyrir tónleika ársins og tryggðu þér tvær frábærar safnplötur með þessum mögnuðu listamönnum. Smelltu á "skoða nánar" til að sjá lagalistana:

Beastie Boys með nýja plötu

11.05.2011.

Beastie Boys hafa sent frá sér nýja plötu. Platan heitir Hot Sauce Committee Part Two og er fyrsta hljóðversplata þeirra í fjögur ár eða frá því The Mix-Up kom út 2007, en hún var án söngs. Gestir á nýju plötunni eru Nas og Santogold og hefur hún verið að mælast vel fyrir og fengið frábæra dóma. Rolling Stone **** Q **** NME 7/10 MBL ****

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli