Eldri fréttir

Eldri fréttir

Helgi Björns slær enn og aftur í gegn

25.07.2011.

Þriðja plata Helga Björns og Reiðmanna vindanna kom út í byrjun júlí og hefur sannarlega slegið í gegn. Tværi fyrri plötur Helga og félaga, sem komu út árin 2008 og 2010 hafa samtals selst í meira en 20 þúsund eintökum og óhætt er að segja að sú nýja stefni í að vera enginn eftirbátur þeirra.

Jón Jónsson með sína fyrstu plötu

08.07.2011.

Platan Wait For Wait með Jóni Jónssyni er komin í verslanir. Platan er frumburður þessa efnilega tónlistarmanns sem slegið hefur rækilega í gegn með lögunum Lately, Kiss in the Morning og When You're Around. Jón lætur það ekki aftra sér að gefa út plötu á miðju knattspyrnusumri en hann spilar með liði F.H. í Pepsideildinni.

Allt það besta frá Eyfa

05.05.2011.

Eyjólfur Kristjánsson, sem iðulega er kallaður Eyfi, varð fimmtugur sunnudaginn 17. apríl. Af því tilefni hefur hann gefið út þrefalda ferilsplötu sem inniheldur öll hans helstu lög. Á plötunni er að finna ódauðlega slagara á borð við Draumur um Nínu, Dagar, Ég lifi í draumi, Álfheiður Björk, Góða ferð og Danska lagið. Þessi glæsilega útgáfa, sem ber nafnið Ykkur syng ég mína söngva, á vafalaust eftir að falla í kramið hjá hinum fjölmörgu aðdáendum Eyfa hér á landi.

Ferilsplatan Ástin og lífið komin í verslanir

05.05.2011.

Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá því að Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason hófu sitt farsæla samstarf. Þeir hafa gefið út fjölda platna, saman og hvor í sínu lagi en eru þó kannski fyrst og fremst þekktir sem tveir af helstu lagahöfundum íslenskrar dægurlagasögu. Af þessu tilefni er komin út ferilsplatan Ástin og lífið 1971-2011. Á þessari veglegu og vönduðu ferilsplötu flytja þeir sjálfir öll sín þekktustu lög og eru upptökurnar ýmist þær upprunalegu eða nýrri útgáfur þeirra sjálfra á eigin lögum sem aðrir flytjendur gerðu fræg á sínum tíma.

Ballið á Bessastöðum komið út á geisladisk

15.02.2011.

Geisladiskurinn Ballið á Bessastöðum inniheldur lög úr samnefndu leikriti eftir Gerði Krsitnýju sem nú er sýnt við góðan orðstír í Þjóðleikhúsinu. Lögin eru eftir Braga Valdimar Skúlason, Baggalút og Memfismafíósa – og textarnir eftir þau Gerði í sameiningu. Bragi fékk félaga sína í Memfismafíunni til að gæða lögin á geisladisknum lífi – og sér töframaðurinn Guðm. Kristinn Jónsson, Kiddi Hjálmur, um upptökustjórn. Lögin eru flest sungin af leikurum í sýningunni en einnig bregður flauelsbarítóninn Sigurður Guðmundsson sér í hlutverk Diskókýrinnar Lilju auk þess sem hin raddþýða Sigríður Thorlacius og nýstirnið Valdimar Guðmundsson syngja saman lagið um Brákvadda bakarann. Ballið á Bessastöðum er ómissandi fyrir alla aðdáendur prinsessa og forseta – en diskurinn fæst í öllum heldri plötuverslunum auk þess sem hann er seldur í Þjóðleikhúsinu.

Þrjú á palli

25.01.2011.

Þriðja platan með Þrjú á palli hefur verið gefin út á geislaplötu í fyrsta skipti. Platan kom fyrst út í september 1971 og fagnar því 40 ára afmæli á þessu ári. Plata þessi var gríðarlega vinsæl á sínum tíma og hér taka meðlimir fyrir erlend þjóðlög við texta Jónasar Árnasonar. Á plötunni eru lög sem eru í dag orðin sígild og hafa lifað með þjóðinni. Nægir þar að nefna lögin „Lífið er lotterí“ og „Dirrindí“. Einnig er á plötunni lag sem á vel við þessa dagana en það er lagið „Þorrablót“.

Bubbi - Sögur af ást, landi og þjóð

19.11.2010.

Í ár eru 30 ár síðan fyrsta sólóplata Bubba Morthens kom út en það var platan "Ísbjarnarblús" sem kom út 17. júní 1980. Af því tilefni er nú komin út þreföld plata með 60 lögum Bubba frá öllum ferlinum og eru hljómsveitirnar þá taldar með, Utangarðsmenn, Ego, Das Kapital, MX 21 og GCD. Þessi glæsilega ferilsútgáfa kemur einnig út í sérútgáfu í takmörkuðu upplagi sem inniheldur plöturnar þrjár ásamt DVD-mynddiski með myndböndum frá ferlinum og völdum tónleikaupptökum. Ferilspakkinn inniheldur 60 lög, eins og áður sagði og er eitt nýtt lag á meðal þeirrra en það er nýja lagið "Sól" sem hefur heyrst á útvarpsstöðvum landsins undanfarnar vikur og hefur fengið afar góðar viðtökur.

Björgvin sendir frá sér Duet II.

18.11.2010.

Árið 2003 sendi Björgvin Halldórsson frá sér eina af sínum allra vinsælustu og best heppnuðu plötum; Duet. Á henni söng hann dúetta með mörgum af bestu söngvurum yngri kynslóðarinnar. Nú 7 árum síðar endurtekur Björgvin leikinn og endurnýjar meðsöngvarahópinn. Að þessu sinni eru lögin 12 talsins og meðsöngvararnir flestir af yngri kynslóð íslenskra söngvara og auðvitað jafnmargir lögunum. Þeir eru Sigurjón Brink, Karl Henry, Helgi Björns, Friðrik Ómar, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guðrún, Mugison, Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson, KK, Guðrún Gunnars og Gissur Páll. Á umslagi plötunnar skrifar Björgvin m.a.: "Það er ekkert skemmtilegra í tónlistinni en að vinna með öðrum. Einsemdin í tónlistarvinnu getur verið bæði lýjandi og letjandi. Ég er svo heppinn að hafa fengið tækifæri að vinna með mörgum frábærum listamönnum í gegnum tíðina á hljómplötum og á sviði, og þakka ég þeim mína velgengni í gegnum tíðina.

Draumskógur - Valgerður Guðnadóttir

16.11.2010.

Fyrsta sólóplata Valgerðar Guðnadóttur er komin út Út er komin fyrsta sólóplata söng- og leikkonunar Valgerðar Guðnadóttur eða Völu Guðna eins og hún er oftast kölluð. Vala sló eftirminnanlega í gegn í Söngvaseið og leikur um þessar mundir í Gauragangi.

Sálin hans Jóns míns sendir frá sér nýja plötu

22.10.2010.

Sálin hans Jóns míns hefur lokið upptökum á sinni 14. breiðskífu sem ber nafnið „Upp og niður stigann“ og er útgáfudagur plötunnar fimmtudagurinn 28.október. Platan er ellefu laga og fer um víðan völl í stílum og stefnum, margslungin en þó með sterkum höfundareinkennum. „Upp og niður stigann“ er unnin að töluverðu leyti í samvinnu við Stórsveit Reykjavíkur og er það liður í viðleitni Sálverja að útvíkka hljóm bandsins, þótt fullmikið væri að tala um byltingu í því sambandi. Það er Samúel J. Samúelsson sem sér um að útsetja flutning Stórsveitar Reykjavíkur á plötunni.


1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 Síðasta síða

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli