Tónlist

Tónlist

Gullvagninn - Björgvin sextugur

02.12.2011.

Þann 16. apríl síðastliðinn varð Björgvin Halldórsson sextugur og var áfanganum fagnað á sjálfri afmælishelginni með þremur uppseldum tónleikum í Háskólabíó þar sem mun færri komust að en vildu. Björgvin fékk til liðs við sig valinkunna hljóðfæraleikara og stórsöngvarana Jóhönnu Guðrúnu, Sigríði Thorlacius, Mugison, Krumma og Siggu Beinteins. Hópurinn lék við hvern sinn fingur á mjög eftirminnilegum tónleikum og voru allir helstu smellirnir frá ótrúlegum rúmlega 40 ára ferli Björgvins fluttir með tilþrifum, við mikinn fögnuð viðstaddra.

Partípopp komin út!

25.11.2011.

Skotheld safnplata fyrir krakka og unglinga á öllum aldri. Platan inniheldur mörg af vinsælustu erlendu og íslensku lögunum síðustu mánuði. Flytjendur á plötunni eru: Maroon 5 ásamt Christinu Aguilera, Katy Perry, Páll Óskar, Jessie J, Justin Bieber, Ingó ásamt Fjallabræðrum, Bruno Mars, Jón Jónsson, LMFAO, Lady Gaga, The Black Eyed Peas, Steindinn okkar ásamt Matta, Rihanna, Pitbull, Jennifer Lopez, Britney Spears, Jedward og Friðrik Dór.

Rihanna - Talk That Talk

23.11.2011.

Aðeins er rúmt ár síðan Rihanna sendi frá sér plötuna Loud, sem innihélt smelli eins og „Only Girl (In the World)“, „What’s My Name“ og „S&M“. Hér er glæný plata með þessari skærustu stjörnu poppheimsins í dag. Platan inniheldur meðal annars stórsmellinn „We Found Love“.

Pink Floyd - A Foot In The Door : Best Of

23.11.2011.

Ný safnplata með Pink Floyd. Lagalistinn er eins og sjá má magnaður og öll lögin í betri hljómgæðum. Einnig koma út meistarastykkin Dark Side Of The Moon og Wish You Were Here í stórkostlegri endurútgáfu.

Glæsilegur tónleikapakki Helga Björns

16.11.2011.

Tónleikar Helga Björns frá 17. júní, þar sem hann söng íslenskar dægurperlur ásamt góðum gestum, eru komnir út á cd & dvd Upptaka frá tónleikum Helga Björns í Hörpu sem haldnir voru á þjóðhátíðardegi Íslendinga síðasta sumar er komin út í veglegum pakka. Tónleikarnir fóru fram í stærsta sal hússins, Eldborg, og var öllu tjaldað til. Útkoman er líka mögnuð upplifun, sem núna er komin út á bæði cd og dvd. Hugmyndin var að fara vítt og breytt um sviðið og heimsækja íslenskar perlur sem hafa lifað með þjóðinni í langan tíma, sumar í áratugi. Allt eru þetta sígildar perlur sem þó heyrast ekki oft með fullskipaðri hljómsveit, heilli strengjasveit og karlakór. Svo ekki sé talað um þá vinsælu söngvara sem veittu Helga félagsskap í Hörpu.

Friðrik Ómar og Jógvan - Ný barnaplata

15.11.2011.

Íslensk og færeysk barnalög fyrir börn á öllum aldri er sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu plötu Vinalög sem kom út árið 2009 og var einmest selda plata þess árs. Þessar frændþjóðir styrkja nú bönd sín í gegnum vinsæla tónlist að nýju.

Páll Óskar & Sinfó í Hörpunni á CD og DVD

15.11.2011.

Páll Óskar var með þeim allra fyrstu til að halda sannkallaða stórtónleika í Hörpunni, þegar húsið opnaði í vor. Hélt hann þar einkar glæsilega ferilstónleika með bestu hljómsveit landsins, Sinfóníuhljómsveit Íslands. Má með sanni segja að þessi þrenning; Páll Óskar, Sinfó og Harpan hafi getið af sér einstakan viðburð og ógleymanlegir stundir hjá þúsundum gesta. Fimm tónleikar seldust upp og miklu færri komust að en vildu. Sérstök viðhafnarútgáfa í takmörkuðu magni fáanleg frá 1. desember

Dikta - Trust Me - Ný útgáfa Kölska

15.11.2011.

Fjórða breiðskífa Diktu er að koma út. Platan sem nefnist Trust Me kemur í verslanir föstudaginn 18. nóvember en hún verður fáanleg í forsölu á tónlist.is frá og með þriðjudeginum 15. nóvember. Til að fagna útgáfu plötunnar mun Dikta halda útgáfutónleika á Nasa við Austurvöll fimmtudagskvöldið 24. nóvember. Þar verður engu tilsparað til að gera þetta veglegustu tónleika Diktu hingað til. Miðasala er þegar hafin á miði.is.

Justin Bieber með nýja jólaplötu

15.11.2011.

Ástmögur unglingsstúlkna hefur gefið út skothelda jólaplötu, sem faánleg er bæði á CD og með DVD. Platan heitir Under the Mistletoe og smellið á "skoða nánar" til að skoða lagalistann.

Coldplay – Mylo Xyloto

24.10.2011.

Út er komin fimmta plata Coldplay og ber hún nafnið Mylo Xyloto. Að sögn Chris Martin söngvara sveitarinnar er platan þemaplata, að hún er ástarsaga með góðum endi. Upptökustjórn var í höndum Markus Dravs, Daniel Green og Rik Simpson ásamt því að upptökugoðsögnin Brian Eno hjálpaði til við vinnsluna. Síðasta plata sveitarinnar Viva La Vida kom út árið 2008 og fór í 1 sæti breiðskífulista útum allan heim.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli