Tölvuleikir
Uncharted 3 Kominn út
Nathan Drake og félagar er hér mættir í sínu stórbrotnasta ævintýri hingað til. Hér þvælist þessi glerharði gaur um allan heim í leit að fjársjóðum og frama. Uncharted 3 er algjör tímamótaleikur þegar kemur að söguþræði, netspilun og grafík.
Need for Speed The Run
Einhver harðarsti kappakstur allra tíma er mættur í þessum glænýja Need for Speed leik. Keyrt er þvert yfir Bandaríkin og er vinningsféð 25 milljónir dollara. Mafían og löggan reyna allt til að stoppa þig í þessum flotta Need for Speed leik.
Modern Warfare 3 Kominn út
Þriðja heimsstyrjöldin er að brjótast út, en Rússarnir ætla sér heimsyfirráð. Leikmenn fara í hlutverk ýmissa persóna sem þurfa að setja tappa í þessa grjóthörðu styrjöld.
Battlefield 3 Kominn út
Eftir 6 ára bið er nýr Battlefield loksins kominn út. Kjarnorkuvopnum hefur verið komið fyrir í París og New York og það er hlutverk þitt að leysa úr málunum. Netspilun leiksins er sú flottasta í dag og það sama má segja um grafíkina. Hér er mættur einhver harðasti skotleikur sem komið hefur út í langan tíma.
Fifa 12 Kominn út
Nýjasta útgáfan af Fifa 12 inniheldur meira en 300 breytingar frá síðustu útgáfu. Varnarkerfi leiksins hefur verið tekið algjörlega í gegn, auk þess sem grafíkin hefur verið djúsuð upp. Gervigreindin er orðin mun raunverulegri sem gerir spilunina skemmtilegri.
Duke Nukem Forever® mun sparka í rassa þann 6.maí
2K Games og Gearbox Software hafa tilkynnt um tímamót í tölvuleikjasögunni – hinn goðsagnakenndi Duke Nukem mun snúa aftur í leiknum Duke Nukem Forever® á PC, PlayStation 3 og Xbox 360, 6.maí næstkomandi.
Duke Nukem er eitt stærsta og þekktasta vörumerkið í tölvuleikjaheiminum. Hinn ofurmyndarlegi og kröftugi Duke Nukem kemur á hárréttum tíma, því yfir okkur flæða tölvuleikir með hálfgerðum gervihetjum sem eru að reyna sitt besta til að bjarga heiminum. Duke mætir eins og hann er þekktur fyrir með vindil í munnvikinu, kaldann á kanntinum og spörk í geimverurassa til að bjarga heiminum og gellum heimsins. Hvar ætlar þú að vera þegar Duke Nukem Forever kemur út? Það er eins gott að merkja daginn í dagatalið því saga Duke heldur áfram í maí og hún verður svakaleg eins og kemur fram í nýjasta myndskeiði leiksins sem nálgast má á www.dukenukemforever.com
Smellið upp sólgleraugunum og gerið ykkur klár til að feta í fótspor Duke Nukem, en goðsögnin um hann hefur náð ótrúlegum hæðum síðan við sáum til hans síðast. Bunki af geimverum hefur ráðist á jörðina og aðeins Duke getur bjargað deginum. Svínalöggur, geislar sem minnka hluti og risavaxnar geimverur geta ekki stöðvað okkar mann frá því að ná markmiði sínu sem er: bjarga heiminum, bjarga gellunum og vera geggjaður meðan á því stendur. Kóngurinn mætir með vopnabúrið fullt af ýktum vopnum, endalausan hasar og mikinn fjölbreytileika.
Fyrir frekari upplýsingar um Duke Nukem Forever bendum við á heimsíðu leiksins www.dukenukemforever.com.
L.A. Noire
Rockstar Games hafa tilkynnt að leikurinn L.A. Noire verði gefinn út á PlayStation 3 og Xbox 360, 20.maí 2011.
“L.A. Noire er ný upplifun fyrir okkur,” segir Sam Houser, stofnandi Rockstar Games. “Við náum hér að skapa einstakan og grípandi spennutrylli með því að blanda saman hasar og starfi einkaspæjarans.”
Leikurinn gerist í Los Angeles eftir seinna stríð, en borgin er á þeim tíma uppfull af ofbeldi og spillingu. L.A. Noire er glæpatryllir þar sem leikmenn þurfa að leysa hin ýmsu sakamál, finna vísbendingar, taka þátt í bílaeltingaleikjum og skotbardögum, en leikurinn inniheldur spilun þar sem leikmenn geta yfirheyrt grunaða og þurfa þar að lesa í svipi þeirra til að komast að sannleikanum. Leikmenn fara í hlutverk Cole Phelps sem er heiðruð stríðshetja sem hefur unnið sig upp innan lögreglunnar með því að leysa hin ýmsu mál.
Leikurinn inniheldur sérstaka tækni sem getur skannað inn andlit leikara og fært inní leikinn, en þetta er nauðsynlegt til að skapa trúverðugar persónur.
Þinn einkaþjálfari heima í stofu.
EA Sports Active 2 er æfingarkerfi sem skynjar hreyfingar líkamans með fullkomnum skynjurum sem settir eru á hendur og fætur. Auk þess að skynja hreyfingar, mæla skynjararnir einnig púls og geta notendur stöðugt fylgst með hversu hraður hann er til að tryggja hámarks árangur. EA Sports Active 2 safnar saman upplýsingum um æfingarnar svo að notandinn geti fylgst með árangri sínum, en í EA Sports Active 2 eru meira en 70 æfingar sem þjálfarar leiksins leiðbeina notendum með.
Nokkrir góðir í pakkann
Sena mælir með þessum tölvuleikjum í jólapakkann:
Need for Speed Hot Pursuit "Besti bílaleikur ársins.." - 1UP
Call of Duty Black Ops "Besti Call of Duty leikurinn.." - IGN.com
James Bond Blood Stone "Skemmtilegur hasarleikur.." - Joystiq
Sly Collection "Pakki ársins.." - Computer and Videogames
World of Warcraft Cataclysm
Nú er allt orðið brjálað í heimi World of Warcraft.
Azeroth heimurinn er kominn í rugl og hefur breyst til
allrar framtíðar. Í þessum nýjasta aukadisk geta
leikmenn hækkað persónurnar uppá hærra stig, farið í
glænýjar ránsferðir í hinar og þessar dýflissur og trítað
sig á hátt sem aldrei áður hefur sést í heimi World of
Warcraft. Í þessari viðbót geta leikmenn spilað sem
cursed worgen hjá Alliance og sem hinir ráðagóðu
goblinar hjá Horde. Þessi þriðji aukadiskur byggir á
hinum geysvinsæla grunni sem skapast hefur með
World of Warcraft og tekur spilunina á enn hærra stig.