Starfssemin

Starfssemin

Sena er langstærsta afþreyingarfyrirtæki landsins og hjá fyrirtækinu vinna 70 manns. Innan Senu eru nokkrar deildir og skiptast þær í tónlistardeild, kvikmyndadeild og tölvuleikjadeild en einnig á Sena fyrirtækið Bravó!.  Bravó! er öflugt viðburðafyrirtæki sem heldur og skipuleggur atburði af öllum gerðum og stærðum, með íslenskum og erlendum listamönnum.. Sena rekur einnig Smárabíó, Háskólabíó, Regnbogann og Borgarbíó Akureyri. Nánari útlistun á starfsemi deildanna er hér fyrir neðan. Sena dreifir einnig til almennings efni frá mörgum stærstu framleiðendum heims á sviði tónlistar, kvikmynda og tölvuleikja, í gegnum verslanir, myndbandaleigur, kvikmyndahús, sjónvarp og fleiri efnisveitur.

 

 

Tónlist

Tónlistardeild Senu er í senn öflugasta tónlistarútgáfa Íslands sem og stærsti umboðsaðili erlendarar tónlistar á Íslandi.

Sena gefur út 50 til 70 nýjar íslenskar geislaplötur árlega. Útgáfan er afar fjölbreytt enda stendur Sena fyrir útgáfu nýrrar tónlistar af öllum gerðum auk þess sem Sena er eigandi útgáfuréttar að gríðarlega stórum hluta íslenskrar tónlistarsögu og sinnir því ýmis konar endurútgáfum af miklum krafti. Þriðji stóri þátturinn í tónlistarútgáfu Senu eru safnplötur með íslenskri og erlendri tónlist í bland. Meðal tónlistarmanna/hljómsveita sem Sena gefur út má nefna Bubba Morthens, Björgvin Halldórsson, Sálina hans Jóns míns og Ampop.

Sena er umboðsaðili allra hinna svokölluðu “majora” í erlendri tónlist en það eru Universal, Warner, EMI og Sony/BMG. Auk þessara risa er Sena einnig umboðsaðili fyrir ýmsa smærri útgefendur. Meðal erlendra tónlistarmanna sem Sena gefur út á Íslandi má nefna U2, Coldplay, Robbie Williams, Red Hot Chilli Peppers og fjölda annarra.

 

 

Tölvuleikir

Sena dreifir tölvuleikjum fyrir marga af stærstu framleiðendum heims og má þar nefna Electronic Arts, Sony Computer Entertainment, Konami, Activision, Take 2 Interactive, THQ, Atari, Sega, Vivendi Games, auk margra annarra.

Auk þess að dreifa leikjum fyrir hinar ýmsu leikjtölvur er Sena með umboð fyrir PlayStation tölvurnar og eru þar helstar PlayStation 2, PlayStation 3 og PSP (PlayStation Portable).

 

 

Viðburðir

Sena rekur Bravó! sem er öflugt viðburðafyrirtæki sem heldur og skipuleggur atburði af öllum gerðum og stærðum, með íslenskum og erlendum listamönnum.


Markmið Bravó er að setja mark sitt á íslenskt menningar- og skemmtanalíf með því að bjóða Íslendingum upp á fjölbreytt úrval atburða á hverju ári.

 

Fólkið á bak við Bravó er reynslumesta fólk landsins í atburðahaldi og hefur þekkinguna og samböndin til að láta ótrúlega hluti gerast í samvinnu við öfluga aðila hérlendis og erlendis.

 

Við leggjum áherslu á fjölbreytileika og gæði; að bjóða upp á eitthvað fyrir alla en tryggja í hvert skipti að atburður á okkar vegum sé í alla staði faglega framkvæmdur og standi undir væntingum viðskiptavinanna okkar. Enginn atburður er of stór eða of lítill og við höfum gaman af því að fara ótroðnar slóðir á mörgum sviðum. Fylgstu með og láttu endilega í þér heyra ef þú hefur skoðanir eða hugmyndir um atburðahald á Íslandi.

 

Meðal fyrri atburða Bravó gengisins má nefna:

 

Alice Cooper
Bob Dylan
Chris Cornell
Deep Purple
Diana Krall
Eddie Izzard
Gardar Thor Cortes
Icelandic Music Awards
James Blunt
Jamie Kennedy
Jarvis Cocker
Jim Rose Circus
Joe Cocker
Jose Carreras
Josh Groban
JS Ballet
Katherine Jenkins
Katie Melua
Kiri Te Kanawa
Live8
Lou Reed
Marianne Faithfull
Patti Smith
Pilobolus
Ray Davies
Sailesh
Sissel Kjirkebo
Snoop Dogg
Sugababes
The Shadows
Uriah Heep
Van Morrison

 

Síðast en ekki síst framleiddi Bravó LADDI 6-TUGUR, sem er einhver vinsælasta leiksýning allra tíma.

 

 

Bíó

Kvikmyndadeild Senu á og rekur 4 glæsileg kvikmyndahús.

Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Salirnir eru allir gerðir með það fyrir augum að gesturinn njóti myndarinnar við fullkomnustu aðstæður sem völ er á í dag; risasýningartjald, hljóðkerfi sem fær hárin til að, rísa, gott útsýni óháð sætavali og ný tegund stóla sem uppfyllir allar kröfur um gæði. Smárabíó býður upp á allt það sem bestu kvikmyndahús heims bjóða upp á í dag. Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti.

 

Regnboginn hóf starfsemi sína árið 1980 og var það fyrsta fyrsta bíóið með fleiri en einn sal á Íslandi. Bíóið er staðsett í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið á Hverfisgötu 54. Miklar breytingar hafa verið gerðar í Regnboganum í gegnum tíðina og fyrirmyndin hefur oftar en ekki verið Smárabíó. Sem dæmi má nefna að ný sæti, eins og þau sem eru í Smárabíói, hafa verið sett í alla sali Regnbogans, en sætin hafa komið sérstaklega vel út hvað varðar þægindi. Regnboginn er heimavöllur Græna ljóssins.

 

Borgarbíó Akureyri er búið 2 kvikmyndasölum og tekur rúmlega 300 manns í sæti. Kvikmyndahúsið er eitt fárra frumsýningabíóa utan höfuðborgarinnar og var stofnað fyrir miðja síðustu öld og er því líklega eitt elsta kvikmyndahús á landinu. Á annan tug starfsmanna vinnur nú við bíóið.

 

Þann 1 maí 2007 tók Sena við rekstri Háskólabíós og var strax farið í gagngerar endurbætur sem heppnuðust gríðarlega vel. Þar eru 5 salir með 840 sætum, sem er góð viðbót og nú er hægt að sýna kvikmyndir Senu samtímis í enn fleiri kvikmyndahúsum. Sena er nú orðin stærsti rekstraraðili kvikmyndahúsa hér á landi.

 

Smelltu hér til að skoða kvikmyndvefinn Bíó.is sem veitir daglega uppfærðar upplýsingar um sýningartíma, kvikmyndir, fréttir og margt margt fleira.

 

 

Kvikmyndir

Sem dreifingaraðili á kvikmyndum (í bíó, á DVD, VOD og í sjónvarp) og á sjónvarpsþáttum (á DVD) er Sena leiðandi hérlendis. Sena er umboðsaðili fyrir mörg af helstu

dreifingarfyrirtækjum heims og má þar helst nefna 20th Century Fox,

Sony Pictures, Focus Features, Weinstein Company og Icon Prodcutions.

 

Sena vinnur auk þess náið með íslenskum kvikmyndargerðarmönnum og

hefur tekið þátt í að dreifa og/eða meðframleiða flestar af

vinsælustu íslensku myndum síðari ára og má þar helstar nefna : Mýrina, Jón Pál, Little Trip to Heaven, Kalda slóð og Í takt við tímann.

 

DVD útgáfa Senu er að sama skapi öflug, en þar á bæ eru allar

innlendar og erlendar kvikmyndir á vegum Senu gefnar út um allt land.

Auk þess hafa fjölmargir íslenskir DVD diskar frá Senu slegið í gegn

og má þar t.d. nefna Strákana, 70 mínútur og Sailesh.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli