DVD
Headhunters komin á DVD
Roger Brown virðist lifa fullkomnu lífi. Honum gengur vel í starfi sínu sem fremsti mannaveiðari Noregs, er giftur hinni gullfallegu Díönu, sem rekur listasafn, og saman búa þau í stórglæsilegu húsi. En Roger er ekki allur þar sem hann er séður. Roger er nefnilega líka þjófur. Í gegnum listasafn eiginkonu sinnar aflar hann sér upplýsinga um fórnarlömb sín og þegar tekur að myrkva lætur hann til skarar skríða. Með þessum hætti tekst honum að fjármagna þann dýra lífstíl sem hann og eiginkona hans eru föst í.
Steindi í gull!
Steindi og leikstjórinn Ágúst Bent fengu á miðvikudag afhenta frá SENU gullplötu fyrir sölu á fyrstu þáttaröð Steindans okkar á DVD. Diskurinn hefur selst í meira en 5.000 eintökum frá því að hann kom út seint á síðasta ári og Steindi var að vonum hræður og ánægður.
I Don‘t Know How She Does It á DVD
Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu velska rithöfundarins Allison Pearson sem kom út árið 2002, og heitir á íslensku Móðir í hjáverkum. Bókin sló í gegn beggja vegna Atlantshafsins enda einkar lipurlega skrifuð og full af húmor og öðruvísi innsýn í líf hinnar úrræðagóðu Kate Reddy sem meðhöndlar öll vandamál með því að leysa þau. Þessi stórskemmtilega gamanmynd er nú komin á DVD í næstu verslun. Algerlega jólagjöf konunnar í ár. Með Söru Jessicu Parker í fantaformi!
Spy Kids 4 á DVD
Tryggið ykkur þessa stórskemmtilegu fjölskyldumynd á DVD í næstu verslun. Á yfirborðinu á Marissa Cortez Wilson allt sem hugurinn girnist. Hún er gift frægum sjónvarpsmanni sem eltist við njósnara, er nýbúin að eignast barn og á tvö frábær stjúpbörn. En í raun hefur fátt reynst henni erfiðara en að reyna að ganga þeim Rebeccu og Cecil í móðurstað og maðurinn hennar, Wilbur myndi ekki finna njósnara þó hann byggi með einum, en það er einmitt raunin.
Rise of the Planet of the Apes á DVD og blu-ray
Vísindamaður kannar genabreytingar í von um að finna lækningu á Alzheimer. Þegar hann gefur simpansa að nafni Sesar tilraunameðferð af lyfi, verður hann ofurgáfaður og einstaklega hættulegur. Sesar er ósáttur með framkomu mannsins gagnvart apakyninu og ætlar sér að frelsa bræður sína úr prísund mannsins. Er það upphafið á stríði manna og apa sem seinna meir mun gjöreyða mannkyninu? Þróun sem verður að byltingu. Tryggið ykkur hina mögnuðu spennumynd Rise of the Planet of the Apes sem er nú komin á DVD og blu-ray. Frábærar tæknibrellur og áhættuatriði. Mynd sem þú verður að eiga.
Rauðhetta 2 á DVD
Rauðhetta litla hefur að undanförnu stundað þjálfun og æfingar til að geta orðið fullgildur meðlimur í leyniþjónustusamtökunum AGEV (Allt er gott sem endar vel). En kallið kemur fyrr en nokkurn gat grunað því norn ein, illviljuð og grimm, hefur rænt sakleysingjunum Hans og Grétu í einhverjum voðalegum tilgangi. Og ævintýrið er hafið. Mun Rauðhetta standast prófið eða þarf hún að fara aftur í þjálfun og koma til baka í þriðju myndinni? Missið ekki af þessari frábæru fjölskyldmynd á DVD í næstu verslun.
Steindinn Okkar 2 komin á DVD
Nú er önnur þáttaröðin af Steindanum okkar loksins komin út á DVD. Þættirnir, sem voru sýndir á Stöð 2 vorið 2011, hafa dregið landann upp á hærra plan og komið okkur út úr grámyglulegum hversdagsleikanum með ógleymanlegum atriðum. Steindi fer á kostum ásamt landsliði leikara, grínista og þjóðþekktra einstaklinga.
Sem fyrr munu Steindi og félagar greina frá gerð þáttanna, ásamt öðru skemmtilegu aukaefni sem ekki hefur sést áður í sjónvarpi. Þættirnirhlutu einróma lof gagnrýnenda og flokkir þú DVD safnið þitt eftir gæðum mun Steindinn okkar tróna þar á toppnum!
Strumparnir komnir á DVD!
Ein vinsælast bíómynd ársins Strumparnir er nú komin á DVD. Þessi frábæra fjölskyldumynd sló í gegn á árinu í kvikmyndahúsum og tók 35.000 manns í bíó og algjör skyldueign á DVD á öll heimili. Komin í verslanir um land allt!
Ísöld - Mammútajól komin á DVD
Það kannast allir kvikmyndaunnendur við loðfílinn Manna og ísaldarvini hans, en þeir hafa gert garðinn frægan síðan þeir komu fram á sjónarsviðið í fyrstu ísaldarmyndinni sem var gerð árið 2002 og sló hressilega í gegn. Þetta er glæný jólamynd fyrir alla fjölskylduna þar sem Ísaldarkarakternir fara á kostum. Myndin er komin í verslanir um land allt og DVD-diskurinn inniheldur m.a. sýnishorn úr næstu Ísaldarmynd, Ísöld 4, sem á íslensku nefnist Heimsálfuhopp og verður sýnd í kvikmyndahúsum á næsta ári.
Gói og eldfærin komin á DVD
Gói og Þröstur Leó opna Borgarleikhúsið uppá gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Viðtökurnar hafa verið frábærar, enda þykir staðfærsla Góa á hinni sígildu sögu um Eldfærin eftir H.C. Andersen einstaklega vel lukkuð, lífleg og með skemmtilegri tónlist. Gói leikur dátann og Þröstur Leó fer á kostum í hlutverki nornarinnar, hundanna með ógnarstóru augun, prinsessunnar og annarra tilfallandi aukahlutverka. Gói og Eldfærin er sannkallaður leikhúsglaðningur fyrir alla ölskylduna!