Bíó
Kvikmyndadeild Senu á og rekur 3 glæsileg kvikmyndahús.
Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Salirnir eru allir gerðir með það fyrir augum að gesturinn njóti myndarinnar við fullkomnustu aðstæður sem völ er á í dag. Risasýningartjald, hljóðkerfi sem lætur hárin rísa, gott útsýni óháð sætavali og ný tegund stóla sem uppfyllir allar kröfur um gæði. Smárabíó býður upp á allt það besta sem kvikmyndahús getur boðið upp á í heiminum í dag. Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti.
Borgarbíó Akureyri er búið 2 kvikmyndasölum og tekur rúmlega 300 manns í sæti, en við það vinnur á annan tug starfsfólks. Kvikmyndahúsið er eitt fárra frumsýningabíóa utan höfuðborgarinnar og var stofnað fyrir miðja síðustu öld og er því líklega eitt elsta kvikmyndahús á landinu.
Þann 1 maí 2008 tók Sena við rekstri Háskólabíós. 5 salir með 840 sætum er góð viðbót fyrir Senu þar sem nú verður hægt að sýna kvikmyndir Senu samtímis í fleiri kvikmyndahúsum. Sena er nú orðin stærsti rekstraraðili Kvikmyndahúsa hér á land
Smelltu hér til að skoða kvikmyndvefinn midi.is sem veitir daglega uppfærðar upplýsingar um sýningartíma, kvikmyndir, fréttir og margt margt fleira.
Verðskrá:
Almennt verð 1250
Barnaverð 0-8 ára 650
Barnaverð 9-12 ára 1100
Eldri borgarar/öryrkjar 900
Lúxus 2300
Lúxus 3D 2450
3D almennt verð 1450
3D barnaverð 0-8 ára 950
3D barnaverð 9-12 ára 1300
3D Eldri borgarar/öryrkjar 1200
Gleraugu seld sér
Íslenskar:
Almennt verð 1600
Eldri borgarar/öryrkjar 1050
Íslenskar 3D:
Almennt verð 1600
0-8 ára 950
9-12 ára 1450
eldri borgarar/öryrkjar 1350
Almennt verð íslenskar teiknimyndir
Almennt verð 1300
0-8 ára 650
9-12 ára 1150
Eldri borgarar/öryrkjar 1200