Kvikmyndir
Chronicle heimsfrumsýnd á föstudag
Chronicle er frumraun hins 26 ára gamla leikstjóra Josh Trank. Hún er gerð í anda "District 9" með frábærum bakgrunni í stíl vísindaskáldsagna og ótrúlegum tæknibrellum. Þrír skólastrákar gera merkilega uppgötvun sem leiðir til þess að þeir öðlast furðulega krafta ofar þeirrar eigin skilningi. Frumsýnd í Smárabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og í Keflavík
HEIMSFRUMSÝNING Á ÍSLENSKUM VOD LEIGUM
Með útgáfu myndarinnar TIM & ERIC'S BILLION DOLLAR MOVIE fer Sena ótroðnar slóðir hérlendis, þar sem myndin var heimsfrumsýnd samtímis 27. janúar á VOD leigum Íslands og á iTunes í Bandaríkjunum. Myndin kemur ekki í kvikmyndahús fyrr en 2. mars og verður þá gefin út samtímis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Myndin kostar á íslensku VOD leigunum 1.500 kr. en þess má geta að verðið á iTunes verður $9.99 eða 1.250 kr. sem er einmitt það sama og bíómiði kostar hérlendis þessa dagana.
Underworld: Awakening frumsýnd á föstudag
Það er komið að fjórðu Underworld-myndinni og um er að ræða HEIMSfrumsýningu. Sem fyrr skartar myndin stórfenglegum tæknibrellum sem fá áhorfendur til að grípa andann á lofti. Breska leikkonan Kate Beckinsale snýr hér aftur flottari en nokkru sinni fyrr í hlutverki hinnar mögnuðu Selenu sem hefur leitt baráttu vampíranna fyrir tilverurétti sínum hingað til í fyrri myndum og ávallt haft sigur. Nú þarf hún að horfast í augu við mestu ógnina sem hún og vampírunar hafa nokkurn tíma haft yfir höfði sér og sinn versta og máttugasta óvin til þessa: Manninn.
The Descendants frumsýnd á föstudag
Óskarsverðlaunahafinn Alexander Payne sem m.a. leikstýrði Sideways og About Schmidt færir okkur hér enn eitt meistaraverkið þar sem George Clooney sýnir svo ekki verður um villst að hann er einn albesti leikari heims og skilar sinni bestu frammistöðu til þessa í þessari mögnuðu mynd. Clooney leikur hér Matt King, innfæddan Hawaii-búa sem fer með eigarhaldið á stóru landi sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans um áratugaskeið. Hann stendur nú andspænis þeirri ákvörðun að annað hvort selja landið eða fara sjálfur út í framkvæmdir á því.
My Week with Marilyn frumsýnd á föstudag
Michelle Williams vinnur sannkallaðan leiksigur í þessari frábæru og stórskemmtilegu kvikmyndaperlu sem goðsögnin Marilyn Monroe. Myndin segir frá einni viku sem Colin nokkur Clark (Eddie Raymayne) eyddi með stærstu stjörnu heims á meðan á tökum á myndinni The Prince and the Showgirl fór fram sumarið 1956 á Englandi.
The Sitter frumsýnd á föstudag
The Sitter er léttgeggjuð grínmynd um hundlatan auðnuleysingja sem býr hjá mömmu sinni og talar ekki við pabba sinn sem er farinn frá þeim. Hann ákveður að taka að sér að gæta þriggja spilltra krakka til að mamma hans komist á stefnumót og fer það gjörsamlega úr böndunum! Frumsýnd 30. desember í Smárabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri
The Girl With the Dragon Tattoo heimsfrumsýnd
Núna á miðvikudaginn í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Egilshöll og Borgarbíói Akureyri.
Einn allra virtast leikstjóri samtímans, David Fincher (The Social Network, The Curious Case of Benjamin Button, Fight Club) tæklar hér á hvíta tjaldinu bókina Karlar sem hata konur eftir Stieg Larson, sem hefur slegið í gegn um allan heim og er Íslendingum að góðu kunn.
Alvin og íkornarnir 3 frumsýnd á föstudag
Alvin og krúttlegu félagarnir hans Símon og Theódór ásamt Birgittu, Elínborgu og Jónínu eru mætt aftur til leiks í jólamyndinni í ár og hafa aldrei verið hressari, kátari, stríðnari og hræddari. Fyrstu tvær myndirnar um Alvin og félaga slógu hressilega í gegn og samanlagt sáu tæplega 60 þús manns þær tvær, enda frábærar barnamyndir sem höfða einnig sterkt til fullorðinna. Húmorinn er kostulegur, persónurnar sprelllifandi og blöndun teikninga og leikinna atriða einstaklega vel gerð. Frumsýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri