Fréttir

Fréttir

Chronicle heimsfrumsýnd á föstudag

01.02.2012.

Chronicle er frumraun hins 26 ára gamla leikstjóra Josh Trank. Hún er gerð í anda "District 9" með frábærum bakgrunni í stíl vísindaskáldsagna og ótrúlegum tæknibrellum. Þrír skólastrákar gera merkilega uppgötvun sem leiðir til þess að þeir öðlast furðulega krafta ofar þeirrar eigin skilningi. Frumsýnd í Smárabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og í Keflavík

HEIMSFRUMSÝNING Á ÍSLENSKUM VOD LEIGUM

31.01.2012.

Með útgáfu myndarinnar TIM & ERIC'S BILLION DOLLAR MOVIE fer Sena ótroðnar slóðir hérlendis, þar sem myndin var heimsfrumsýnd samtímis 27. janúar á VOD leigum Íslands og á iTunes í Bandaríkjunum. Myndin kemur ekki í kvikmyndahús fyrr en 2. mars og verður þá gefin út samtímis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Myndin kostar á íslensku VOD leigunum 1.500 kr. en þess má geta að verðið á iTunes verður $9.99 eða 1.250 kr. sem er einmitt það sama og bíómiði kostar hérlendis þessa dagana.

Underworld: Awakening frumsýnd á föstudag

19.01.2012.

Það er komið að fjórðu Underworld-myndinni og um er að ræða HEIMSfrumsýningu. Sem fyrr skartar myndin stórfenglegum tæknibrellum sem fá áhorfendur til að grípa andann á lofti. Breska leikkonan Kate Beckinsale snýr hér aftur flottari en nokkru sinni fyrr í hlutverki hinnar mögnuðu Selenu sem hefur leitt baráttu vampíranna fyrir tilverurétti sínum hingað til í fyrri myndum og ávallt haft sigur. Nú þarf hún að horfast í augu við mestu ógnina sem hún og vampírunar hafa nokkurn tíma haft yfir höfði sér og sinn versta og máttugasta óvin til þessa: Manninn.

Headhunters komin á DVD

19.01.2012.

Roger Brown virðist lifa fullkomnu lífi. Honum gengur vel í starfi sínu sem fremsti mannaveiðari Noregs, er giftur hinni gullfallegu Díönu, sem rekur listasafn, og saman búa þau í stórglæsilegu húsi. En Roger er ekki allur þar sem hann er séður. Roger er nefnilega líka þjófur. Í gegnum listasafn eiginkonu sinnar aflar hann sér upplýsinga um fórnarlömb sín og þegar tekur að myrkva lætur hann til skarar skríða. Með þessum hætti tekst honum að fjármagna þann dýra lífstíl sem hann og eiginkona hans eru föst í.

The Descendants frumsýnd á föstudag

19.01.2012.

Óskarsverðlaunahafinn Alexander Payne sem m.a. leikstýrði Sideways og About Schmidt færir okkur hér enn eitt meistaraverkið þar sem George Clooney sýnir svo ekki verður um villst að hann er einn albesti leikari heims og skilar sinni bestu frammistöðu til þessa í þessari mögnuðu mynd. Clooney leikur hér Matt King, innfæddan Hawaii-búa sem fer með eigarhaldið á stóru landi sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans um áratugaskeið. Hann stendur nú andspænis þeirri ákvörðun að annað hvort selja landið eða fara sjálfur út í framkvæmdir á því.

My Week with Marilyn frumsýnd á föstudag

04.01.2012.

Michelle Williams vinnur sannkallaðan leiksigur í þessari frábæru og stórskemmtilegu kvikmyndaperlu sem goðsögnin Marilyn Monroe. Myndin segir frá einni viku sem Colin nokkur Clark (Eddie Raymayne) eyddi með stærstu stjörnu heims á meðan á tökum á myndinni The Prince and the Showgirl fór fram sumarið 1956 á Englandi.

Vinningshafar í Ísland Opoly leiknum.

28.12.2011.

Þá er búið að draga út vinningshafa í Ísland Opoly leiknum og haft verður samband við vinningshafa fimmtudaginn 29. desember. Smellið á linkinn "skoða nánar" til að sjá nöfn vinningshafa og viðkomandi verðlaun. Við þökkum frábærar móttökur á spilinu og þáttökuna í leiknum og óskum vinningshöfum til hamingju.

The Sitter frumsýnd á föstudag

28.12.2011.

The Sitter er léttgeggjuð grínmynd um hundlatan auðnuleysingja sem býr hjá mömmu sinni og talar ekki við pabba sinn sem er farinn frá þeim. Hann ákveður að taka að sér að gæta þriggja spilltra krakka til að mamma hans komist á stefnumót og fer það gjörsamlega úr böndunum! Frumsýnd 30. desember í Smárabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli