DVD

DVD

Jennifer's Body - DVD

05.03.2010.

Jennifer er glæsileg og heillandi klappstýra en þegar illur andi yfirtekur líkama hennar gefur það hugtakinu illska alveg nýja merkingu og karlkynsnemendurnir falla flatir fyrir henni hver á fætur öðrum.

Whatever Works - DVD

05.03.2010.

Hér er á ferðinni nýjasta mynd meistara Woody Allen og það er enginn annar en Larry David, maðurinn á bak við Curb Your Enthusiasm og Seinfeld þættina, sem fer með aðahlutverkið. Eins og við er að búast þegar tveir viðlíka snillingar snúa bökum saman, er útkoman með eindæmum skemmtileg.

James Cameron - Box Sett - DVD

05.03.2010.

Titanic Ekkert jafnast á við þessa hjartnæmu sögu um fyrstu og síðustu ferð Titanic. Hún hefur hrifið gesti kvikmyndahúsa um allan heim og er óumdeilanlega vinsælasta kvikmynd allra tíma.

Wrong Turn 3 - DVD

25.02.2010.

Í Wrong Turn 3; Left For Dead er Three Finger og mannætufjölskyldan hans enn á lífi þegar hópur fólks í útilegu hættir sér of nærri samastað þeirra. Fólkið kemst því miður of seint að því að fleira en blóðmaurarnir eru hættulegir í dimmum skóginum.

Brothers Bloom - DVD

18.02.2010.

Alla þeirra ævi hafa bræðurnir Stephen og Bloom verið snillingar í að plata og pretta fólk. Nú ætla þeir að svindla í síðasta skipti og það skal verða stórt. Þeir ætla að féfletta hina gullfallegu en stórfurðulegu Penelope sem er erfingi gríðarmikilla auðæva.

Extract - DVD

18.02.2010.

Leikstjóri Office Space, (Mike Judge,) færir sig hér úr skrifstofuplássinu yfir að færibandinu í snilldarlegri gamanmynd. Joel (Jason Bateman) er að fara að selja bragðefnafyrirtækið sitt og allt virðist ætla að leika í lyndi þar til óheppilegt slys verður.

Strumparnir - Safn 5 - DVD

18.02.2010.

Gæludýr barnastrumps / Gáfnastrumpur Fær Hugmynd 1. Það eru veitt verðlaun fyrir fallegasta gæludýrið. Barnastrumpur kemur með gæludýr sem allir elska en ekki er allt sem sýnist þar sem 2. Gáfnastrump langar afar mikið að vera eins og Æðsti strumpur. Getur hárvaxtarmeðal verið svarið? Nær Kjartan loksins að klófesta sér strump?

Zombieland - DVD & BlurRay

18.02.2010.

Háskólaneminn Columbus óttast allt sem hugast getur og það verður til þess að hann lifir af pláguna sem breytir mannkyninu í mannætur og uppvakninga. Byssumaðurinn og fjörkálfurinn Tallahasse óttast ekki neitt en saman þurfa þeir að horfast í augu við skelfilegustu áskorun lífsins til þessa - að halda út félagsskap hvors annars.

Family Guy .. Something Something Something Dark Side

11.02.2010.

Hamingjan sanna, Family Guy með skrumskælingu á uppáhalds geimvísindamyndinni okkar! Megi hláturinn vera með ykkur þegar Chris geimgengill tekur höndum saman með Peter Solo og Louis prinsessu í bardaga við Stewie Svarthöfða og hyski hans.

Ice Castles - DVD

11.02.2010.

Skautastjarnan Alexis Winston er ung, falleg og hæfileikarík en leið hennar á toppinn reynist ekki auðveld. Hún þarf að leggja hart að sér við íþróttina og það sem erfiðara er - hún þarf að yfirgefa heimabæinn og skilja kærastann eftir.

I Love You Beth Cooper - DVD

11.02.2010.

Það kemur öllum á óvart þegar Denis Cooverman, hallærislegasti gaurinn í skólanum, lýsir yfir ást sinni á Beth Cooper, vinsælustu stelpu skólans, í útskriftarræðunni. En það kemur þó enn meira á óvart þegar Beth birtist heima hjá Denis með tveimur bestu vinkonum sínum

Anvil - DVD

04.02.2010.

Hér er á ferðinni stórkostlega skemmtileg heimildarmynd sem hefur farið sigurför um heiminn undanfarið. Myndin fjallar um tvo rokkara á sextugsaldri, Lipps og Robb, sem slógu næstum því í gegn fyrir 30 árum og halda enn í vonina um að verða frægir. Stærstu rokkarar heims, meðlimir hljómsveita á borð við Mettallica og Anthrax, viðurkenna að hafa stolið heilmiklu frá Anvil; að þeir hafi verið meðal upphafsmanna þungarokksins, sannir brautryðjendur og áhrifavaldar.

Miss March - DVD

26.01.2010.

Kostuleg, opinská og grátbrosleg saga vinanna Eugene og Tuckers sem leggja upp í ferð þvert yfir Bandaríkin, til Playboy-setursins, í leit að Cindi, hinni fallegu og saklausu vinkonu Eugene, sem orðin er opnustúlka í Playboy.

Antichrist - DVD

26.01.2010.

Hér er á ferðinni nýjasta meistaraverkið frá snillingnum Lars Von Trier. Par missir son sinn er hann dettur út um glugga á meðan þau stunda kynlíf í næsta herbergi. Móðirin endar á spítala vegna sorgar sinnar, en eiginmaðurinn fer með hana heim og hyggst kljást við þunglyndi hennar upp á eigin spýtur, enda sálfræðingur sjálfur.

Into The Blue 2 - DVD

26.01.2010.

Into the Blue 2: The Reef segir frá kafaraparinu Sebastion og Dani sem lenda í mikilli þrekraun þegar þeim er heitið stórri fjárhæð fyrir að leiðbeina fólki á köfunarsvæðum við kóralrif. Fyrir atbeina viðskiptavinanna lenda þau í gífurlegri lífshættu

This Is It - DVD & BluRay

25.01.2010.

Í This Is It, er skyggnst á bak við tjöldin þar sem hinn stórkostlegi listamaður Michael Jackson, undirbýr og æfir fyrir tónleika sína í London sem seldust upp á svipstundu. Hér er fylgst með framvindu mála frá því í apríl og fram í júní 2009.

Aliens In The Attic - DVD

21.01.2010.

Pearson-krökkunum hundleiðist að þurfa að eyða sumarfríinu í bústað með foreldrum sínum. Það er að segja þar til herskáar, grænar geimverur nauðlenda á þakinu og hyggjast fyrst leggja húsið undir sig og síðan alla jörðina.

Damned United - DVD

21.01.2010.

Hér er sögð ótrúleg og bráðskemmtileg saga Brians Clouch (Michael Sheen) og ferli hans sem framkvæmdastjóra enska knattspyrnuliðsins Leeds United, sem aðeins stóð í 44 daga. Hann tók við liðinu án þess að hafa sinn trygga aðstoðarmann Peter Taylor

Taking Of Pelham 123 - DVD & BluRay

14.01.2010.

Dagurinn virðist ætla að vera ósköp venjulegur hjá Walter Garber (Denzel Washington), starfsmanni neðanjarðarlestakerfis New York. En það breytist þegar hópur harðsvíraðra glæpamanna undir forystu hins dularfulla Ryders (John Travolta)

Halloween 2 - DVD

14.01.2010.

Þessi árstími er runninn upp einu sinni enn og Michael Myers sem kominn er heim til Haddonfield í Illinois hyggst ljúka því sem hann telur sig eiga óuppgert þar og hver sem verður á vegi hans er í alvarlegri lífshættu.

Tenderness - DVD

14.01.2010.

Lori Cranston er fimmtán ára, ráðvillt og á flótta undan erfiðu heimilislífi. Hún verður heilluð af Eric, ungum manni sem var að losna úr unglingafangelsi fyrir hrottalegt morð á foreldrum sínum. Saman leggja þau upp í ferðalag en lögreglumaðurinn Christophero fylgir þeim fast eftir.

Guð Blessi Ísland - DVD

10.12.2009.

Helgi Felixson er Íslendingur, búsettur í Svíþjóð og virtur kvikmyndagerðarmaður erlendis. Hann var fyrir tilviljun staddur á Íslandi 6. október þegar Geir H. Haarde hélt sína frægu ræðu rétt fyrir setningu neyðarlaganna. Það var erfitt að skilja nákvæmlega hvað var að gerast og ómögulegt að ímynda sér atburðina sem fylgdu í kjölfarið.

Algjör Sveppi 2 - DVD

10.12.2009.

„Algjör Sveppi er mættur aftur á nýjum úttroðnum DVD-diski sem inniheldur hvern einasta þátt í annarri þáttaröð. Þættirnir voru sýndir við mikla kátínu yngstu áhorfendanna laugardags- og sunnudagsmorgna á Stöð 2 veturinn 2008-2009. Nú er Sveppi búinn að flytja og kominn með ennþá stærra og flottara herbergi og fullt af spennandi leikföngum.

Ugly Truth - DVD & BluRay

10.12.2009.

Katherine Heigl og Gerard Butler fara með aðalhlutverkin bráðskemmtilegri mynd um baráttu kynjanna. Abby er stjórnandi vinsæls morgunþáttar í sjónvarpi og gerir miklar kröfur til væntanlegs mannsefnis. Mike, hinn óþolandi samstarfsmaður hennar, veit hinsvegar að karlmenn sækjast bara eftir einu.

Stúlkan Sem Lék Sér Að Eldinum - DVD

10.12.2009.

Önnur myndin í Millennium trílógíunni fylgir eftir gríðarlegum vinsældum Karla sem Hata Konur sem gagnrýnendur héldu vart vatni yfir. Hin ótrúlega Lisbeth Salander lendir aftur í ótrúlegum hremmingum með blaðamanninum Mikael Blomkvist í baráttu þeirra við ill öfl í samfélaginu.

Draumalandið - DVD

30.11.2009.

Draumalandið fjallar um þjóð sem er búin að koma upp öllum sínum innviðum og hefur öll tækifæri í hendi sér en ákveður að gera landið að einni stærstu málmbræðslu í heiminum. Til þess þarf að fórna einstæðri náttúru og þenja efnahagskerfið til hins ítrasta.

Fangavaktin - DVD

30.11.2009.

Ógæfa bensínafgreiðslumannana af Laugaveginum ætlar engan endi að taka í Fangavaktinni, þriðja hluta Vaktaseríunnar. Á meðan Ólafur Ragnar valsar um frjáls og sinnir starfi sínu sem fasteignasali, hafa þeir félagar Georg og Daníel komið sér á kaldan klaka eftir atburðina í Bjarkarlundi og þurfa að afplána dóma á Litla Hrauni.

Strumparnir - Safn 3

30.11.2009.

BRÚÐKAUP ÆÐSTA STRUMPS Þegar Blómálfurinn kemur í Strumpabæ, falla strumparnir fyrir þokka hennar, en komast fljótt að hún er ekki öll þar sem hún er séð ...

Strumparnir - Safn 4

30.11.2009.

GALDRAMAÐURINN SEM SKRAPP SAMAN Illi seiðskrattinn hefur hent svo miklu af galdraúrgangi í tjörnina að vatnið er orðið rammgöldrótt.

Strumpasafnið 2 - DVD

12.11.2009.

Hér er á ferðinni annar diskurinn í röð þátta um Strumpana frægu. Sá fyrsti “Skrækur”, segir frá því þegar sorgaratburður verður til þess að Strympa verður óhuggandi. Í næsta þætti, “það Strumpaðist frá himnum” dreymir Svefnstrump um að hitta verur frá öðrum plánetum.

Year One - DVD & BluRay

05.11.2009.

Sagan var skráð - af þessum náungum? Steinaldarmennirnir Zed og Oh staulast út úr helli sínum og leggja upp í sögulega ferð saman. Annar er þrekmikill veiðimaður, hinn rólegur safnari en þessir ólíku félagar eiga eftir að lenda í ótrúlegum ævintýrum og verða vitni að mörgum merkustu atburðum mannkynssögunnar.

Gullbrá og Birnirnir 3 - DVD

05.11.2009.

Þegar Gullbrá, stjórnandi raunveruleikaþátta í sjónvarpi, ákveður að taka næsta þátt upp á heimili bjarnanna, fá þeir nasaþef af því hvernig líf stjarnanna er. En þeir ákveða að kenna Gullbrá dýrmæta lexíu um það mikilvægasta í lífinu; hvernig það er að tilheyra fjölskyldu.

Hardwired - DVD

05.11.2009.

Luke Gibson missir konuna sína í bílslysi. Eftir slysið vaknar hann á sjúkrahúsi og líf hans er á mörkum þess að vera bærilegt. Hættulegri örflögu hefur verið komið fyrir í líkama hans og fylgst er nákvæmlega með henni af starfsmanni Hope Industries.

Night At The Museum - DVD & BluRay

28.10.2009.

Sagan er lengri en mannsævin og helmingi skemmtilegri. Ben Stiller fer á kostum sem Larry Daley, fyrrverandi næturvörður á Náttúrusögusafninu þar sem sýningargripirnir lifna við eftir lokun.

Funny Games - DVD

28.10.2009.

Vel stæð hjón eru ásamt syni sínum tekin til fanga af tveimur ungum drengjum í sumarhúsi sínu. Í fyrstu eru drengirnir afar kurteisir, en sjúkir leikir þeirra ágerast og líkamlegt og andlegt ofbeldi gagnvart fjölskyldunni versnar eftir því sem líður á nóttina.

Réttur - Fyrsta Sería

28.10.2009.

Réttur er fyrsta íslenska réttardrama sem framleitt hefur verið. Réttur er lögfræðidrama sem segir frá lífi og starfi þriggja lögfræðinga í Reykjavík, sem reka lögmannastofuna Lög og Réttur ehf. Í hverjum þætti eru ný viðfangsefni en í gegnum seríuna fylgjumst við með máli hins dularfulla “Föstudagsnauðgara”, sem hrellir borgarbúa í skjóli nætur.

Angels And Demons - Blu Ray og DVD

19.10.2009.

Robert Langdon er boðaður til Rómar þar sem erkióvinur kirkjunnar, leynifélagið Illuminati, hefur rænt fjórum kardínálum. Langdon fær sér til aðstoðar vísindakonuna Vittoru Vetra og í sameiningu fylgja þau eftir fornum táknum á leið sinni um katakombur, dómkirkjur, innsiglaðar grafhvelfingar og fleiri dularfulla staði.

Blái Fíllinn - DVD

19.10.2009.

Fylgist með ferð bláa fílsins og kynnist skemmtilegum persónum, hlátrasköllum og því hve hugrekki getur komið miklu til leiðar. Khan er lítill fíll sem dreymir um að verða hetja.

X-Men Origins: Wolverine - BD og DVD

07.10.2009.

Hugh Jackmann tekst hér á við hlutverk Wolverine einu sinni enn og er í hefndarhug. Hér sjáum við uppruna Logans/Wolverine, ofbeldisfulla en rómantíska fortíðina

Strumpasafnið - Diskur 1 - DVD

07.10.2009.

Á þessum fyrsta disk í nýja safni af hinum frægu teiknimyndum um Strumpana er að finna sjö skemmtilega þætti um ævintýri þeirra í Strumpabæ

Karlar Sem Hata Konur - DVD

01.10.2009.

Blaðamaðurinn Mikael Blomkvist er dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir meiðyrði í garð viðskiptajöfursins Hans- Eriks Wennerström og ákveður í framhaldi af því að taka sér hlé frá störfum á tímaritinu Millennium. Um sama leyti fær hann einkennilega upphringingu.

Choke - DVD

30.09.2009.

Victor Mancini (Rockwell) er uppgjafar læknanemi og kynlífsfíkill, sem borgar fyrir rándýra sjúkrahúsvist móður sinnar, Idu (Huston), á einkaspítala með því að vinna á daginn við að leika í endursköpun nýlendutíma Bandaríkjanna í allsérstökum skemmtigarði í Williamsburg.

Balls Out - DVD

30.09.2009.

Gary Houseman er húsvörður í miðskóla sem býst til að þjálfa ótrúlega lélegt tennislið skólans þegar þjálfari þess deyr skyndilega. Fylkiskeppnin er framundan og nýi þjálfarinn er staðráðinn í að herða liðið, ekki bara til að sigra heldur svo að hver og einn láti ekki vaða yfir sig.

Underworld 3: Rise Of The Lycans - DVD

14.07.2009.

Hér er sagt frá upphaflegu ástæðunni fyrir hinni aldagömlu og blóðugu baráttu milli aðalbornu vampíranna og þrælastéttarinnar. Lucian, ungur maður úr þrælastétt, vinnur sig upp í leiðtogastöðu og hvetur varúlfana til að gera uppreisn gegn Viktori, vampírukonunginum sem hefur hneppt þá í þrældóm.

Legally Blondes - DVD

14.07.2009.

Þegar frænkur Elle Woods, þær Annie og Izzy, fluttu frá Englandi til Kaliforníu álitu þær að bleik föt, smáhundar og brjóstvitið myndi gera þeim kleift að falla inn í fjöldann. En þær komast fljótt að því að þær eiga lítið sameiginlegt með ríka snobbliðinu í nýja skólanum.

Bride Wars - DVD og Blu Ray

08.07.2009.

Liv (Kate Hudson) og Emma (Anne Hathaway) hafa verið bestu vinkonur frá barnæsku og alltaf stutt hvor aðra í gegnum súrt og sætt. Og nú ætla þær að fara að gifta sig og bæði brúðkaupin eiga að fara fram á Plaza hótelinu í New York, vinsælasta staðnum fyrir slíka stórviðburði.

Fired Up - DVD og Blu Ray

08.07.2009.

Aðalstjörnur ruðningsliðs Ford-framhaldsskólans, Shawn Colfax og Nick Brady, ákveða að taka ekki þátt í æfingabúðum liðsins þetta sumarið en hyggjast þess í stað njóta lífsins umkringdir fallegum stelpum - í æfingabúðum fyrir klappstýrur.

Pink Panther 2 - DVD

29.06.2009.

Jacques Clouseau er mættur, betri en nokkru sinni fyrr, í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Þegar frægum djásnum er stolið víðsvegar um heiminn, þar á meðal hinum ómetanlega demanti Bleika pardusinum, er Clouseau skipaður í alþjóðlegan hóp lögreglumanna sem hafa á hendur í hári ræningjans áður en hann lætur til skarar skríða á ný.

The Wrestler - DVD

29.06.2009.

Talað hefur verið um endurkomu aldarinnar hjá Mickey Rourke, sem rakaði til sín tilnefningum og verðlaunum fyrir frammistöðu sína í myndinni. Marisa Tomei hlaut einnig tilnefningu til Óskarsverðlauna. Sagan fjallar um Randy “The Ram” Robinson (Rourke) sem var mikil glímustjarna á 7. áratugnum var. Nú, 20 árum síðar, lætur hann enda ná saman með því að koma fram fyrir hörðustu glímuaðdáendurna í leikfi misölum og félagsmiðstöðvum.

Fanboys - DVD

24.06.2009.

Þrír vinir sem eru einlægir Stjörnustríðsaðdáendur leggja af stað til vesturstrandarinnar þeirra erinda að sjá hina einu og sönnu kvikmynd; Stjörnustríð númer 1. Þetta er árið 1999 og fyrir þessa náunga er Stjörnustríð ekki kvikmyndaröð heldur lífsmáti.

Refurinn og Barnið - DVD

24.06.2009.

Hér er á ferðinni nýjasta mynd Luc Jaquet, höfund myndarinnar um ferðalag keisaramörgæsanna sem sýnd var um allan heim við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum og hlaut Óskarsverðlaun sem besta heimildarmynd ársins. Einn haustmorgun er lítil stúlka á gangi eftir krókóttum stíg, og tekur eftir ref.

Marley And Me - DVD

16.06.2009.

Jennifer Aniston og Owen Wilson fara á kostum sem John og Jenny Grogan, ungt par sem veltir fyrir sér hvort það eigi að fara að ráðast í barneignir. Þá kemur Marley til sögunnar, yndislegur labradorhvolpur sem fellur í hlýðniskólanum og breytir heimilinu í hamfarasvæði.

The Reader - DVD

16.06.2009.

Myndin gerist í Þýskalandi skömmu eftir heimsstyrjöldina síðari. Hannah Schmitz er einmana verkakona sem á árunum áður átti stutt ástarævintýr með unglingspilti. Nú hittast þau aftur þegar hún situr á ákærandabekk sem fyrrverandi fangavörður í útrýmingarbúðum nasista og hann,

VALKYRIE - DVD

03.06.2009.

Hér er sögð sagan um dirfskufullt ráðabrugg Claus von Stauffenberg, ofursta í þýska hernum, og fleiri háttsettra manna um að ráða Adolf Hitler bana. Spennan magnast stig af stigi og verður hreint ótrúleg undir lokin.

PAUL BLART: MALL COP - DVD

03.06.2009.

Hinn góðlynda Paul Blart hefur alltaf dreymt um að komast í ríkislögregluna. Þar til draumurinn rætist verður hann að láta sér nægja starf öryggisvarðar í verslunarmiðstöð, en svo virðist sem hann sé eini maðurinn sem tekur starfið alvarlega.

The Day The Earth Stood Still - DVD og Blu Ray

25.05.2009.

Keanu Reeves er hér í hlutverki Klaatu, veru frá öðrum heimi sem kemur til jarðarinnar og hrindir af stað atburðum sem ógna öllu lífi. Í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannkyninu, taka stjórnvöld og vísindamenn saman höndum til að freista þess að skýra leyndardóminn að baki komu gestsins.

Futurama: Into The Wild Green Yonder - DVD

25.05.2009.

Myrk öfl, eldri en tíminn sjálfur, gera árás í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að nýtt (og grænt) tímabil hefjist í sögunni. Vitið þið nokkuð andstyggilegra? Og það sem verra er, Bender er ástfanginn af giftri vélþokkadís og Leela á flótta undan lögreglunni.

Beowulf and Grendel - DVD

25.05.2009.

Tröllið Grendel fer ránshendi um ríki Hróðgars konungs, en viðleitni Bjólfs til að standa gegn ófreskjunni verður að engu þegar Grendel neitar að mæta honum í bardaga. Þegar Bjólfur kynnist síðan Selmu, dularfullri og fallegri norn

How I Met Your Mother: Season 2

25.05.2009.

Draumadísin hans er einhvers staðar þarna úti, en hver er hún? Ted er á þrítugsaldri og í stöðugri leit að eina, rétta sálufélaganum. Vinir hans, Marshall og Lily, eru í óða önn að undirbúa brúðkaup sitt en hinn óforbetranlegi Barney er enn sannfærður piparsveinn.

How I Met Your Mother: Season 3

25.05.2009.

Leitin að rétta sálufélaganum hefur aldrei verið eins brjálæðislega fyndin. Þrítugsafmælið nálgast óðfluga og Ted hefur enn ekki fundið þá einu réttu. Ann rekst á ýmsar hindranir, vaknar einn morguninn með óvænt húðflúr

Punisher 2: War Zone - DVD og Blu Ray

20.05.2009.

Frank Castle, fyrrverandi sérsveitarmaður, er mættur aftur, í þetta sinn í einkastríði á tveimur vígstöðvum. Hann hefur afmyndað glæpaforingjann Billy Russoti illa í bardaga þar sem alríkislögreglumaður beið einnig bana og Russoti er staðráðinn í að ná fram hefndum.

Nick And Norah‘s Infinite Playlist - Blu Ray og DVD

11.05.2009.

Nick og Norah hittast af tilviljun og leggja upp í leiðangur um rokkheima New York í leit að tónleikum sem eiga að fara leynt og hafa ekkert verið auglýstir, en eru þó með frægri hljómsveit.

Accidental Husband - DVD

11.05.2009.

Þegar spjallþáttastjórnandinn Emma (Uma Thurman) ráðleggur ungri konu að segja slökkviliðsmanninum, unnusta sínum (Jeffrey Dean Morgan) upp, rétt fyrir brúðkaupið, finnur hann upp á djöfullegri hefndaráætlun.

Seven Pounds - DVD og BD

04.05.2009.

Will Smith er hér í hlutverki Bens Tomas, manns sem stendur á krossgötum í lífinu og leitar leiða til að létta á samvisku sinni. Hann kemst að því að hann hefur vald til að breyta aðstæðum sjö persóna sem eiga skilið að fá annað tækifæri.

Rachel Getting Married - DVD og BD

04.05.2009.

Þegar Kym Buchman kemur heim til að vera við brúðkaup systur sinnar hefur hún í farteskinu langa sögu af persónulegum vandamálum, fjölskyldudeilum og sorgum. Fjölskylda og vinir brúðhjónanna hafa hugsað sér að verja saman ánægjulegri helgi, lausri við vandamál og hvers kyns leiðindi, en Kym hefur einstakt lag á að kynda undir spennunni sem brátt nær suðumarki.

Australia - DVD og Blu Ray

04.05.2009.

Nicole Kidman og Hugh Jackman sýna snilldarleik í sögulegri kvikmynd sem gerist við upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Ensk hefðarkona á ferðalagi um Ástralíu kemst þar í kynni við býsna sérstakan kúreka og heillandi frumbyggjabarn þegar hún tekur þátt í nautgriparekstri yfir hinar fögru en hrjóstrugu óbyggðir Ástralíu.

The Promotion - DVD

28.04.2009.

Aðstoðarframkvæmdastjórinn virðist augljóslega næstur í röðinni þegar kemur að því að velja framkvæmdastjóra nýju verslunarinnar sem fyrirtækið er að fara að opna. Það er að segja þar til nýkomni Kanadamaðurinn tekur að sækjast eftir starfinu.

Cadillac Records - DVD

28.04.2009.

Hér er lýst blómatíma hljómplötuútgáfunnar Chess Records sem var í eigu Leonards Chess og lífi listamannanna sem komu þar við sögu, svo sem Muddy Waters, Little Walters, Chuck Berry, Willie Dixon og hinnar merku Ettu James.

Vicky Cristina Barcelona - DVD

21.04.2009.

Fyndnasta og skemmtilegasta mynd Woody Allen í áraraðir og ein besta mynd síðasta árs að mati gagnrýnenda. Javier Bardem, Scarlett Johanson og Penelope Cruz fara á kostum í rómantískri gamanmynd sem hefur rakað til sín verðlaunum. New York lék stórt hlutverk hjá Woody Allen í myndum á borð við Manhattan en hér er það Barcelona sem er leikvöllurinn fyrir ástarævintýri Vicky og Cristinu.

Regína - DVD

21.04.2009.

Regína er ósköp venjuleg 10 ára stelpa í Reykjavík. Hún býr með móður sinni og dreymir um að komast í sumarbúðir. Dag einn uppgötvar hún að hún getur látið hluti gerast með því að syngja um þá. Hún og Pétur vinur hennar ákveða að snúa á örlögin og hrinda af stað áætlun sem varðar framtíð þeirra og foreldra þeirra.

X-Men Trilogy - DVD

21.04.2009.

Stökkbreyttar verur sem búa yfir ótrúlegum hæfileikum eru helsta von mannkyns í framtíðinni og um leið mesta ógnin. Undir stjórn Charles Xavier prófessors (Patrick Stewart) berst hópur sem þekktur er undir nafninu X-men fyrir friðsamlegri sambúð manna og stökkbrigðanna.

Roxy Hunter And The Secret Of The Shaman - DVD

21.04.2009.

Þegar Roxy Hunter, fjörug níu ára stúlka, flytur í undarlegt, gamalt hús uppgötvar hún undraheim með dularfullum ráðgátum. Hún fær besta vin sinn, snillinginn Max, í lið með sér og í sameiningu tekst þeim að leysa morðgátu, bjarga húsinu og sameina gamla elskendur í öðrum heimi.

Quarantine

14.04.2009.

Þegar fréttatökuteymi á að að fylgja eftir hópi slökkviliðsmanna dettur engum í hug að fyrsta hjálparbeiðnin sem brugðist er við kunni líka að verða sú síðasta. Nú situr hópurinn fastur inni í íbúðabyggingu sem stjórnvöld hafa látið loka og engin undankomuleið virðist möguleg.

Skógarstríð 2

07.04.2009.

Elli er yfir sig ástfanginn af Gísellu en leiðin upp að altarinu lengist verulega þegar hópur fordekraðra gæludýra rænir herra Sperðli og hyggst skila honum aftur til eiganda síns. Búi, Elli, McSquizzy og hin skógardýrin halda í björgunarleiðangur til að frelsa vin sinn og fyrr en varir eru þau stödd í herbúðum óvinanna, heimi gæludýranna.

Max Payne

07.04.2009.

Lögreglumaðurinn Max Payne ber takmarkaða virðingu fyrir reglum og hefur engu að tapa. Hann er staðráðinn í finna þá sem myrtu fjölskyldu hans og koma fram hefndum, en rannsóknin leiðir hann á slóðir þar sem óljós mörk eru á ímyndun og raunveruleika.

Dr. Dolittle 5

07.04.2009.

Maya Dolittle gefur drauminn um að verða dýralæknir upp á bátinn og þau Lucky halda til Los Angeles þar sem hún fær starf við spjallþátt um dýr undir stjórn hinnar frægu og vellauðugu Tiffany Monaco.

ZACK AND MIRI MAKE A PORNO

31.03.2009.

Seth Rogen og Elizabeth Banks leika tvo leigufélaga sem ætla að reyna að losa sig úr skuldum með því að framleiða klámmynd. Þegar myndatakan hefst verður málið allt í einu flóknara - og vandræðalegra.

SECRET LIFE OF BEES

31.03.2009.

Hin 14 ára Lily Owens býr hjá ofbeldisfullum og reiðum föður en veit afar lítið um móður sína og á endanum flýr hún að heiman ásamt fóstru sinni og vinkonu, Rosaleen. Þær enda í litlum bæ í Suður-Karólínu þar sem Boatwright-systurnar þrjár taka hana að sér, en þær rækta býflugur.

QUANTUM OF SOLACE - DVD & Blu Ray

24.03.2009.

Í baráttu sinni fyrir réttlæti hittir Bond hina fögru og ófyrirleitnu Camille og hún leiðir hann á slóð Dominic Greene, samviskulauss viðskiptajöfurs og eins aðalmannsins innan hinna dularfullu samtaka Quantum.

House Bunny

18.03.2009.

Þegar eftirlætiskanínunni er vísað burt frá Playboy setrinu, ráfar hún um í reiðileysi í Beverly Hills. En svo rekst hún á sorglega systrafélagið Zeta, Alpha, Zeta og finnur þar heimili, þar sem hún getur svo sannarlega notað hæfileika sína til góðs.

Shredderman Rules

18.03.2009.

Nolan Byrd er ekki einn um að mislíka þegar mesta hrekkjusvín skólans ráðskast með hann, en hann hefur þann heiður að vera eftirlætisfórnarlamb Bubba Bixby. Það er nógu slæmt að hann rændi besta vini Nolan en til að gera illt verra nýtur Bubba þess að niðurlægja Nolan frammi fyrir draumadísinni hans. En einn góðan veðurdag hefur Nolan Byrd fengið nóg og Tætarinn verður til.

Screamers – The Hunting

18.03.2009.

Þrettán ár eru síðan drápsvélarnar sem þekktar eru sem Screamers útrýmdu mannkyninu á Síríusi 6B. En nú heyrist neyðarkall og björgunarsveit er send til plánetunnar sem annars á að vera mannlaus.

The Rocker

11.03.2009.

Tuttugu árum eftir að hafa verið rekinn úr rokkhljómsveit sem var næstum því orðin fræg fær Robert “Fish” Fishman annað tækifæri þegar hann gengur í bílskúrshljómsveit með frænda sínum og fleiri skólastrákum.

The Lodger

11.03.2009.

Lögreglumaður leitar raðmorðingja sem drepur vændiskonur á Sunset Strip í Hollywood en aðferðir hans líkjast aðferðum Jack the Ripper sem hélt Lundúnaborg í heljargreipum á 19. öld og lögreglunni tókst aldrei að hafa uppi á.

Pineapple Express

03.03.2009.

Dópisti nokkur og auðnuleysingi verður vitni að morði sem framið er af illskeyttum fíkniefnasala og óheiðarlegri löggu. Hann gerir sér grein fyrir því að hann er svo gott sem dauðadæmdur

Meet Dave

03.03.2009.

Hann er hvorki feiminn né klæddur samkvæmt diskótísku en Dave Ming Chang er ólíkur öllum öðrum í New York. Hann er nefnilega geimvera, nánar tiltekið geimskip í sendiför til Jarðar til að bjarga heimaplánetunni.

DVD útgáfan í mars !!

26.02.2009.

Pineapple Express (5/3), Meet Dave (5/3), The Rocker (11/3), House Bunny (18/3), Quantum Of Solace (25/3), Zack And Miri Make A Porno (31/3)

Mirrors

25.02.2009.

Fyrrverandi lögreglumaður reynir að koma reglu á líf sitt og gerist öryggisvörður í brunarústum Mayflower-verslunarinnar sem eitt sinn var meðal þeirra glæsilegustu á Manhattan.

Hamlet 2

25.02.2009.

Þegar svo virðist sem leggja eigi leiklistardeild skólans niður tekur Dana Marschz, leiklistarkennari, sig til og skrifar leikhúsverk sem hann vonast til að leysi vandann. Framhaldið af Hamlet Shakespeares er reyndar einhver smekklausasti söngleikur sem sést hefur

Against The Dark

25.02.2009.

Katana-meistarinn Tao fer fyrir sérsveit fyrrverandi hermanna sem leggja upp í árásarferð. Eftir mikinn hörmungatíma hafa blóðþyrstar blóðsugur tekið yfir Jörðina og fámennur hópur sem haldið hefur lífi situr fastur inni á sýktu sjúkrahúsi.

Burn After Reading

15.02.2009.

George Clooney, Brad Pitt, Tilda Swinton, Frances McDormand, og John Malkovich fara á kostum í sprenghlægilegri njósnamynd um morð, fjárkúgun, kynlífsfíkn og líkamsrækt. Tölvudiskur með upplýsingum frá CIA

Private Valentine

15.02.2009.

Allir elska Megan Valentine, en hún situr uppi slipp og snauð þegar óheiðarlegur bókhaldari stingur af með allan ágóðann af síðustu kvikmynd. Hún neyðist því til að ganga í herinn. Þar tíðkast engin stjörnumeðferð

The Lost

11.02.2009.

Bandaríski geðlæknirinn Kevin skrifar metsölubækur. Við kynningu á nýjustu bókinni hittir hann konu sem biður hann að koma aftur til Barcelona og athuga betur mál systur sinnar, en hún hefur dvalið á geðveikrahæli, nánast sinnulaus, frá því að hún var í meðferð hjá Kevin fyrir þremur árum.

Lakeview Terrace

11.02.2009.

Ung hjón eru nýflutt inn í draumahúsið sitt þegar þau verða skotspónn ofstækisfulls nágranna sem er á móti blönduðum hjónaböndum. Nágranninn er lögreglumaður, einstæður faðir og sjálfskipaður vörður hverfisins sem hann fer í eftirlitsferð um á hverju kvöldi.

Igor

11.02.2009.

Igor er teiknimynd sem setur skrímslamyndir, illa vísindamenn og hjálparhellur þeirra í algerlega nýtt samhengi. Á hverju ári er haldin risastór samkeppni meðal brjálaðra vísindamanna þar sem þeir keppast um að vinna hin árlegu Illu Vísindaverðlaun með hverri brjálæðislegri uppfinningunni á eftir annarri.

Laddi 6-tugur: 15 þúsund eintök uppseld hjá útgefanda

11.12.2008.

Laddi 6-tugur kom út á DVD fyrir tæpum tveimur vikum og hafa viðbrögðin verið með miklum ólíkindum. 15.000 eintök voru framleidd og fyrirfram var búist við að slíkt magn myndi duga fram yfir jól og vel það, enda seljast DVD diskar að meðaltali í 3 - 4.000 eintökum og þau tilfelli þar sem diskar hafa selst í meira en 15.000 eintökum hérlendis eru sennilega teljandi á fingrum annarrar handar.

Sena kynnir endurútgáfu á uppistandinu Ég var einu sinni Nörd.

01.12.2008.

Sena og Jón Gnarr kynna endurútgáfu á uppistandinu Ég var einu sinni Nörd. Jón Gnarr skaust upp á stjörnuhimininn með þessum frábæra einleik sem slóg rækilega í gegn á fjölunum fyrir um 10 árum síðan og svo aftur á VHS spólu. Þessi frábæra skemmtun hefur ekki fengist á DVD í áraraðir og vildu Sena og Jón Gnarr bæta úr því. Þessi endurútgáfa er komin með nýtt útlit og inniheldur fullt af aukaefni þar á meðal glænýtt efni (tekið upp 2008) með Jóni Gnarr og Pétri Jóhanni Sigfússyni þar sem þeir félagar líta yfir farinn veg.

Laddi 6-tugur komin út á DVD!

01.12.2008.

Eins og kunnugt er hefur sýningin Laddi 6-tugur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu frá frumsýningu í febrúar 2007. Uppselt hefur verið á tæplega 130 sýningar í röð, samfleytt í tvö ár og gestir eru orðnir hátt í 70 þúsund. Um skeið hafa síðustu sýningarnar verið uppseldar langt fram í tímann og lokasýning er 13. desember. Senu og Bravó er það mikil ánægja að tilkynna hér með um útgáfu sýningarinnar á einstaklega veglegum DVD diski. Hefur disksins verið beðið með þó nokkurrar eftirvæntingar og er það því gleðilegt að geta staðfest að honum er dreift í allar helstu verslandir landsins í dag. Yfir 90 mínútur af aukaefni Mikið hefur verið lagt í gerð DVD disksins og inniheldur hann meðal annars yfir 90 mínútur af spennandi aukaefni: - Baksviðs: Tökuliðið kíkti baksviðs, ræddi við aðstandendur sýningarinnar, fylgdist með undirbúningi og horfði á heila sýningu hinum megin við tjaldið - þar sáu þeir Ladda skipta um búninga og gervi með ógnarhraða í tvo tíma.

Ríkið

21.11.2008.

Drepfyndnir sketsaþættir frá hinum sömu og færðu okkur Fóstbræður, Svínasúpuna og Stelpurnar. Þættirnir gerast á skrifstofu, á ansi óræðum og vægast sagt hallærislegum tíma. Þar er allt verulega kjánalegt; húsgögnin, vinnutækin, klæðaburðurinn, hárgreiðslan og skeggið.

Horton, Ísöld 1 og Ísöld 2

14.11.2008.

Frábær pakki sem inniheldur þrjár bráðskemmtilegar fjöslkyldumyndir, Horton, Ísöld og Ísöld 2

Strangers

14.11.2008.

Mynd þessi er byggð á sönnum atburðum og túlkar á áhrifaríkan hátt hvernig það að opna dyrnar fyrir ókunnugum getur leitt til ólýsanlegrar skelfingar. Liv Tyler og Scott Speedman fara á kostum í óvenjulegri spennumynd

Jólasveinarnir í Dimmuborgum

12.11.2008.

Langt norður í landi á stað sem heitir Dimmuborgir og er í Mývatnssveit búa dálítið magnaðir karlar. Þú hefur kannski komið þangað? En þú sást þá ekki ? það er bara vegna þess að þú hefur ekki horft nægilega vel í kringum þig.

Redbelt

12.11.2008.

Hér er sögð saga Mike Terry, Jiu-Jitsu meistara sem hefur forðast að keppa til verðlauna en kosið þess í stað að að reka skóla í sjálfsvarnaríþróttum samkvæmt siðareglum samurai.

Big Stan

12.11.2008.

Klaufalegi glæpamaðurinn Big Stan (Rob Schneider) er dæmdur í fangelsi og bíður afplánunar, en hann er dauðhræddur við fangelsisvistina og óttast að sér verði nauðgað. Hann fær því meistara í sjálfsvarnaríþróttum (David Carradine) til að kenna sér Kung-Fu.

News Movie

12.11.2008.

Þegar fréttamaðurinn Norm Archer er beðinn um að fórna heilindum sínum í frétta-flutningi til að þóknast nýjum styrktaraðila verður hann ekki bara pirraður, hann verður bálreiður.

10 Bestu

12.11.2008.

Allr tíu þættirnir á tveimur diskum Arnór Guðjohnsen, Sigurður Jónsson, Guðni Bergsson, Ríkharður Jónsson, Pétur Pétursson, Rúnar Kristinsson, Ásgeir Sigurvinsson, Albert Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Eiður Smári Guðjohnsen

Hancock

12.11.2008.

Það eru til hetjur, það eru til ofurhetjur og svo er það Hancock. Sérstökum hæfileikum fylgja sérstakar skyldur eins og allir vita, það er að segja allir nema Hancock. Uppstökkur, kaldhæðinn og misskilinn kemur hann hlutunum í verk og bjargar óteljandi mannslífum en skilur því miður alltaf allt eftir í kaldakoli.

Dead Space

12.11.2008.

Í leiðangri til afskekktrar plánetu í geimnum finnst gamall helgigripur sem talinn er sanna tilveru Guðs og er hann fluttur um borð í geimskipið USG Ishimura. Sumir í áhöfninni tilbiðja hann, aðrir líta á hann með fyrirlitningu

This Christmas

12.11.2008.

Jólin eru hátíð fjölskyldunnar og í fyrsta sinn í mörg ár ætla öll Whitfieldbörnin að dvelja hjá Ma’Dere og Joe, kærastanum hennar, yfir hátíðarnar. Öll koma þau með vandamál í farteskinu.

Pabbinn

12.11.2008.

„Pabbinn“ var frumsýndur í Iðnó þann 25. janúar 2007. Sýningin fékk strax gríðarlega góðar viðtökur hjá gagnrýnendum sem og áhorfendum. Eftir rúmlega 50 troðfullar sýningar í Iðnó fluttist sýningin í Íslensku óperuna vegna vinsælda.

Grísirnir Þrír

12.11.2008.

Þegar grísirnir þrír finna lítinn ylfing við dyrnar hjá sér taka þeir hann að sér og ala upp sem eigið barn, óafvitandi að með því gera þeir einmitt það sem úlfastóðið ætlaðist til. Lucky er orðinn táningur án þess að þekkja þessa sögu en nú verður hann að taka erfiða ákvörðun varðandi fósturfjölskylduna sína.

Gott Kvöld

12.11.2008.

Þegar pabbi skreppur til þess að ná í mömmu er strákurinn einn heima. Hann er hugrakkur en bangsinn hans verður dálítið hræddur þegar Hungurvofan, Tímaþjófurinn, Hræðslupúkinn, Hávaðaseggurinn, Öskurapinn, Ólátabelgurinn, Letihaugurinn, Hrekkjasvínið, Fýlupokinn og Leiðindaskjóðan koma í heimsókn.

Anaconda 3 - Offspring

12.11.2008.

Risaslöngurnar eru snúnar aftur! Í leynilegri tilraunastöð á afskekktum stað í Evrópu er vísindamaður að rannsaka tvær risaslöngur. En þegar tilraunirnar ganga aðeins of langt sleppa slöngurnar og stefna glorhungraðar í átt til mannabyggða.

Nýjar seríur

12.11.2008.

Prison Break Season 1-3 The Shield - Season 5 Damages - Season 1 The Simpsons - Season 11 Futurama - The Beast With A Billion Backs The L Word - Season 4

Fit Pilates

12.11.2008.

Fit Pilates þjálfar djúpvöðva líkamans, gefur langa fallega vöðva, sléttan kvið, grönn læri, sterkt bak, betri líkamsstöðu, aukinn liðleika og samhæfingu. Skemmtilegar og styrkjandi æfingar sem móta flottar línur líkamans.

Algjör Sveppi

12.11.2008.

Allir morgunhressir krakkar þekkja Sveppa, uppátækjasama strákinn sem vaknar fyrir allar aldir og brallar hina ótrúlegustu hluti í herbergi sínu. Þættirnir Algjör Sveppi slógu í gegn þegar þeir voru sýndir á laugardags- og sunnudagsmorgnum á Stöð 2 veturinn 2007-2008. Nú eru allir þættirnir í þessari fyrstu þáttaröð komnir saman á þennan sneisafulla DVD-disk.

Duggholufólkið

12.11.2008.

Kalli, 12 ára gamall tölvunörd, er lítið spenntur fyrir því að eyða jólunum með nýrri fjölskyldu föðurs síns, á afskektum bæ vestur á fjörðum. Honum líkar ekki við Ellen, nýju stjúpsystur sína, auk þess sem ekkert GSM samband er á bænum.

Zombie Strippers

12.11.2008.

Dularfull stofnun sleppir lausri veiru sem breytir fólki í uppvakninga og að sjálfsögðu er fyrsti staðurinn sem verður fyrir barðinu á henni vinsæli nektardansstaðurinn Rhino’s. Þegar ein dansmeyjan smitast af veirunni breytist hún umsvifalaust í mannætu og verður fljótlega aðalaðdráttar aflið í klúbbnum.

Horton

12.11.2008.

Fíllinn Horton nýtur lífsins þegar hann heyrir neyðarkall berast frá rykkorni sem svífur í loftinu. Hann kemst brátt að raun um að inni í rykkorninu er Hver-Bær, borg með örsmáum íbúum sem standa frammi fyrir gífurlegu vandamáli.

Brúðguminn

12.11.2008.

Jón (Hilmir Snær Guðnason) er nú að kvænast öðru sinni, í þetta sinn konu sem er helmingi yngri en hann. Ekki eru allir ánægðir með ráðahaginn og í þeim hópi eru tilvonandi tengdaforeldrar Jóns, sem reka gistiheimili í Flatey, þar sem brúðkaupið er haldið.

MEET BILL

14.10.2008.

Líf Bills virðist algerlega fullkomið, það er að segja fullkomið klúður. Konan hans heldur við fréttaþul á sjónvarpsstöð staðarins og sjálfur situr hann fastur í ömurlegu starfi í bankanum hjá tengdapabba.

DEVIL'S CHAIR

14.10.2008.

Nick West fer með kærustuna inn í tómt og yfirgefið geðsjúkrahús þar sem þau ætla að neyta fíkniefna. En þegar stúlkan fær sér sæti á stól afskræmist hún og dregst inn í undarlegt svarthol.

LINEWATCH

14.10.2008.

Cuba Gooding jr. er hér í hlutverki landamæra­varðar við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkós, sem hefur ekki alltaf verið réttu megin við lögin. Syndir fortíðar skjóta upp kollinum þegar gamli glæpaforinginn hans leitar hann uppi

PROM NIGHT

14.10.2008.

Fyrir þremur árum varð Donna vitni að því þegar fjölskylda hennar var myrt á hrottafenginn hátt. Í kvöld er útskriftarballið í skólanum og þótt skuggar fortíðarinnar sæki á hana hlakkar hún engu að síður til að fagna framtíðinni með vinum sínum.

WHAT HAPPENS IN VEGAS

14.10.2008.

Eftir eitt viltasta kvöld á lífsleið þeirra beggja, vakna þau Jack (Ashton Kutcher) og Joy (Cameron Diaz) upp daginn eftir gift og það hvort öðru. Bæði viðurkenna að þetta séu reginmöstök og samþykkja að ógilda giftinguna.

Sena gefur út í dag Stikkfrí frá árinu 1997

23.09.2008.

Sena gefur út í dag íslensku barna- og fjölskyldumyndina Stikkfrí frá árinu 1997 eftir Ara Kristinsson. Myndin hefur ekki komið út á DVD áður og er því ómetanlegur gripur í DVD-safn landans. Myndin verður fáanleg í næstu verslun í vikunni. Í viðhengi er mynd af þrem aðalleikkonunum eins og þær líta út í dag

Jumper

17.07.2008.

Ungi maðurinn David Rice er Stökkvari og þeim hæfileikum búinn að geta flutt sig með hugarorku á hvaða stað sem er á jörðinni. Þegar hann uppgötvar að fleiri hafa sömu hæfileika er hann skyndilega staddur langt aftir í öldum í blóðugu stríði

Kickin'it Old Skool

17.07.2008.

Árið er 1986, kappsemi er af því góða, legghlífar í tísku og breikdans nýjasta æðið. Justin Schumacher er að keppa í breikdansi þegar hann fær slæmt höfuðhögg og fellur í dá

27 Dresses

17.07.2008.

Jane er rómantísk stúlka sem veit ekki hvað öfund eða eigingirini er og hefur staðir sig með afbrigðum vel sem brúðarmær í 27 skipti, en hennar eigið brúðkaup virðist hvergi í vændum

Awake

17.07.2008.

Ungur auðkýfingur þarf að gangast undir hjartaaðgerð en eitthvað fer úrskeiðis þannig að svæfingin verkar ekki sem skyldi. Hann er því fullkomlega meðvitaður um allt sem er að gerast, ekki síst skerandi sársaukann

ÍSLENSKIR DVD DAGAR

01.07.2008.

Sena kynnir með stolti meistaraverk Friðriks Þórs Friðrikssonar loksins fáanlega á DVD; Rokk í Reykjavík, Bíódagar og Skytturnar, fyrsta mynd Friðriks. Einnig fáanlegar Englar Alheimsins, Börn Náttúrunnar, Djöflaeyjan og Á Köldum Klaka. Rokk Í Reykjavík er ein magnaðasta heimildarmynd íslenskrar kvikmyndasögu um rokkið í Reykjavík í byrjun níunda áratugarins. Bíódagar er margverðlaunuð mynd fyrir alla fjölskylduna og var m.a. valin besta barnamynd Norðurlandanna 1994. Þessar sígildu myndir eru skyldueign inn á heimili landsmanna.

Evening

07.04.2008.

Helstu leikkonur nútímans fara á kostum í áhrifamikilli kvikmynd. Þegar Anne rifjar upp helgina sem hún átti með ástinni í lífi sínu og breytti lífi hennar varanlega, gera dætur hennar sér grein fyrir áhrifum fortíðarinnar

Impulse

07.04.2008.

Claire Dennison er gullfalleg og hugsar ekki um annað en að vekja losta hjá eiginmanninum. Henni dettur í hug að setja á svið leikþátt þar sem hún er saklaus stúlka í leit að skeleggum manni sem er reiðubúinn að gera hvað sem er til að ná henni á sitt vald

Veðramót

31.03.2008.

Þrír bjartsýnir byltingasinnar fara norður í land og taka að sér að stjórna vistheimili fyrir vandræða unglinga “Veðramótun“. Fljótlega uppgötva þau að hugsjónir sem þau lögðu upp með duga ekki alls staðar.

The Brothers Solomon

31.03.2008.

Þegar faðirinn liggur fyrir dauðanum og óskar þess að fá að sjá fyrsta barnabarnið áður en hann gengur á fund skapara síns er það hægara sagt en gert fyrir bræðurna Solomon.

The Lover’s Guide Interactive

31.03.2008.

Leiðarvísir elskendanna er frábær leiðsögn að góðu og farsælu ástarsambandi. Diskarnir eru framleiddir í samvinnu við Relate og sýna fjöldann allan af tækni og aðferðum til að ná hæstu hæðum í kynlífinu.

Moliere – Græna Ljósið

31.03.2008.

Bráðfyndin frönsk stórmynd um gamanleikskáldið fræga Moliére, sem hefur verið kallaður Shakespeare Frakklands. Árið er 1644 og Moliére er aðeins tuttugu og tveggja ára. Hann er skuldum vafinn og hundeltur af innheimtumönnum.

Persepolis – Græna Ljósið

31.03.2008.

Teiknimynd byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Marjane er aðeins 9 ára gömul þegar íslamska byltingin á sér stað í Íran og strangtrúaðir taka öll völd, neyða blæjur á konur og fangelsa þúsundir.

Promise Me This – Græna Ljósið

31.03.2008.

Nýjasta myndin frá íslandsvininum Emir Kusturica kom sá og sigraði á Cannes kvikmyndahátíðinni. Efst uppi á einangraðri hæð mitt í serbnesku sveitinni kemur Tsane, afi hans og kýrin þeirra Cvetka. Ásamt nágrannakennaranum eru þau einu íbúar þorpsins

Terror’s Advocate – Græna Ljósið

31.03.2008.

Ögrandi heimildarmynd eftir Barbet Schroeder um Frakkann Jacques Vergés, hinn mjög svo umdeilda lögfræðing sem hefur unnið sér það til frægðar að verja alla verstu skúrka heims, en á meðal skjólstæðinga hans má nefna Pol Pot, Mao Tse Tung, Slobodan Milosevic, Saddam Hussein, Carlos the Jackal og Klaus Barbie.

Die Fälscher

31.03.2008.

Frábær þýsk mynd, byggða á sönnum atburðum, um hóp af gyðingum í útrýmingarbúðum, sem árið 1936 eru sérvaldir af nasistum til að falsa erlenda gjaldmiðla. Myndin var tilnefnd til Gullbjörnsins í Berlín

Balls Of Fury

26.03.2008.

Þegar FBI fær Randy Daytona, fyrrverandi atvinnumann í borðtennis, í lið með sér til að koma upp um ólöglegt atferli í íþróttinni er Randy staðráðinn í að komast á ný til fyrra metorða og koma upp um morðingja föður síns

Lions For Lambs

25.03.2008.

Háskólakennari í Kaliforníu reynir að hvetja nemenda sinn til að gera gagn í lífinu og á sama tíma skýrir þingmaður í Washington D.C. tortryggni fréttakonu frá nýjum hugmyndum varðandi ástandið í Austurlöndum nær.

Family Guy: Blue Harvest

25.03.2008.

Griffin-fjölskyldan fer að sjálfsögðu á kostum í mögnuðustu vísindaskáldsögu allra tíma. Peter er stórfenglegur í hlutverki Han Solo, Lois hefur vissulega konunglegt yfirbragð sem Leia prinsessa, Chris nær göngulagi Loga geimgengils fullkomlega

Jane Austin Book Club

18.03.2008.

Fimm konur og einn karl hittast reglulega til að ræða skáldsögur enska rithöfundarins Jane Austen og komast fljótt að raun um að vandamál Emmu, herra Darcy og Bennet systra eru ekki svo ólík þeirra eigin.

Good Luck Chuck

18.03.2008.

Einhleypar konur standa í biðröð við svefnherbergisdyr Charlies Logan. Að eyða einni nótt með honum tryggir að þær muni hitta þann eina rétta innan skamms. Charlie er nefnilega eins konar lukkudýr.

Waitress

18.03.2008.

Gengilbeinan Jenna býr í smábæ, en hana dreymir stóra drauma og hún gerir hreint ótrúlega góðar bökur. Hana dreymir um að sigra í bökukeppni og vinna 25.000 dali, segja skilið við eiginmanninn og opna eigin bökuverslun.

Nanny Diaries

06.03.2008.

Annie Braddock hefur núlokið námi og er undir miklum þrýstingi frá móður sinni að finan starf við hæfi í viðskiptaheiminum. Annie kýs þó frekar að þiggja starf sem barnfóstra hjá auðugri fjölskyldu

Surf's Up - Brettin Upp!!

06.03.2008.

Mörgæsastrákurinn Kódi, sem á heima á Skjálfanda á Suðurskautslandinu, fer að heiman til að taka þátt í mikilli brimbrettakeppni við strönd Pen Gu eyjar. Þar kynnist hann ýmsum nýjum vinum, svo sem kjúklingnum Jóa og strandverðinum Lani.

Eastern Promises

15.02.2008.

Viggo Mortensen og Naomi Watts fara á kostum í þessari frábæru spennumynd leikstjórans David Cronenberg. Ferill glæpamannsins Nikolai og tengls hans við kunna glæpaklíku er í uppnámi þegar leiðir hans og ljósmóðurinnar Önnu liggja óvænt saman

Joshua

15.02.2008.

Lífið brosir við Brad og Abby Cairn. Hjónabandið er hamingjusamt, þau eiga bráðgreindan 9 ára son og annað barn á leiðinni. En Joshua litli virðist hafa megna óbeit á litlu systur sinni og óhugnalegir atburðir taka að gerast. Er þetta allt ótrúleg tilviljun eða úthugsuð hefnd.

Shield - Sería 4

15.02.2008.

Fjórða serían af þessum snilldar þáttum er nú loksins komin á DVD, inniheldur alla 13 þættina ásamt fullt aukaefni á 4 diskum. Aðalhlutverk : Michael Chiklis, Walton Goggins, Benito Martinez

The Dark Is Rising

11.02.2008.

Í jólafríinu uppgötvar ósköp venjulegi unglingurinn Will Stanton að hann er langt frá því að vera venjulegur. Sem sjöundi sonur sjöunda sonar er hann “leitarinn”, stríðsmaður sem ætlað er að finna jafnvægi milli ljóss og myrkurs.

Missionary Man

11.02.2008.

Þegar ókunnugur maður, Ryder að nafni, birtist óvænt í smábæ einum breytist líf borgaranna til hins betra, en þeir hafa hingað til þurft að lúta harðstjóranum á staðnum. Vopnaður Biblíunni, mótorhjóli og hefndarþorsta skorar Ryder ógnvaldinn á hólm og sannar að réttlætið sigrar að lokum.

Love Lies Bleeding

11.02.2008.

Duke og Amber álita að peningar breyti öllu – allavega eftir að Duke verður óvænt vitni að fíkniefnaviðskiptum og finnur tösku troðfulla af illa fengnu fé. Þau láta pússa sig saman í snarheitum og hyggjast síðan hefja lífið sem þau hefur alltaf dreymt um.

Weddign Daze

11.02.2008.

Anderson hefur misst draumadísina sína og er þess fullviss að hann verði aldrei framar ástfanginn. En þegar besti vinur hans ögrar honum stenst hann ekki mátið og ber óvænt upp bónorð við gengilbeinuna Katie

Bruce Willis Collection

04.02.2008.

Bruce Willis Collection - Inniheldur myndirnar : Die Hard (Alan Rickman) / Bandits (Billy Bob Thornton, Cate Blanchet) / The Siege (Denzel Washington) / Hart's War (Colin Farrell)

Futurama Complete Series

04.02.2008.

Futurama Complete - Seríur 1 til 4 saman í þessu 15 diska pakka. Öll ævintýri Dr. Zoidberg's, Bender's og félaga í þessum eigulega pakka.

Family Guy - Freakin Party Pack

04.02.2008.

Family Guy - Freakin Party Pack - Family Guy Seríur 1 til 6 saman í boxi. 16 diska pakki sem inniheldur alla þættina með þessari endalaust skrítnu fjölskyldu - Skyldueign í safnið !!

Family Guy - Blue Harvest

04.02.2008.

Er til betri leið til að halda upp á 30 ára afmæli Star Wars en að horfa á Family Guy útgáfuna af Stjörnustríðinu - Chris er Luke, Lois er Leia Prinsessa, Peter er Han Solo .....

Boston Legal - Sería 3

04.02.2008.

Denny Crane, Alan Shore, Shirley Scmidt og félagare eru mætt aftur í þriðju seríunni af þessum sívinsælu þáttum sem slegið hafa í gegn á Skjá Einum Inniheldur alla þættina úr seríu þrjú á alls sex diskum.

James Bond Ultimate Edition - Pierce Brosnan

04.02.2008.

Allar Bond myndirnar með Pierce Brosnan saman í einum pakka - Goldeneye / Tomorrow Never Dies / The World Is Not Enough / Die Another Day

James Bond Ultimate Edition - Roger Moore

04.02.2008.

Allar Bond myndirnar með Roger Moore saman í pakka - Live And Let Die, Man With The Golden Gun, The Spy Who Loved Me, Moonraker, For Your Eyes Only, Octopussy, A View To A Kill

James Bond Ultimate Edition - Sean Connery

04.02.2008.

Allar Bond myndirnar með Sean Connery saman í pakka - Dr. No, From Russia With Love, Goldfinger, Thunderball, You Only Live Twice, Diamonds Are For Ever

Clint Eastwood Collection

04.02.2008.

Clint Eastwood Collection - Inniheldur myndirnar : A Fistful Of Dollars / The Good, The Bad And The Ugly / For A Few Dollars More / Hang 'Em High

Arnold Schwarzenegger - Collection

04.02.2008.

Arnold Schwarzenegger Collection inniheldur myndirnar : Predator / Commando / The Terminator / Conan The Barbarian

Steve McQueen - Collection

04.02.2008.

Steve McQueen Collection Inniheldur myndirnar : The Great Escape / The Magnificent Seven / The Thomas Crown Affair / The Sand Pebbles (4 Diska Box Set)

Nýjir titlar á BluRay

04.02.2008.

Independence Day - Will Smith, Jeff Goldblum, Bill Pullman Mr & Mrs Smith - Brad Pitt, Angelina Jolie, Vince Vaughn Robocop - Peter Weller, Kurtwood Smith, Ronny Cox Edward Scissorhands - Johnny Depp, Winona Ryder, Alan Arkin

Butterfly On A Wheel

04.02.2008.

Neil og Abby lifa áhyggjulausu lífi þar til dóttur þeirra er rænt og undarlegur maður, Ryan að nafni, skýtur upp kollinum. Ryan stendur augljóslega að baki mannráninu og nú krefst hann þess að hjónin vinni ýmis verk fyrir sig til að bjarga lífi til dótturinnar.

Day Watch

04.02.2008.

Aðeins eitt getur komið í veg fyrir endalok veraldarinnar. Hinir ójarðnesku varðmenn á Dagvaktinni, sem stjórna herjum ljóss og myrkurs. Þegar sonur eins yfirmannsins gengur myrkrinu á hönd eru ótrúleg öfl leyst úr læðingi og framtíð heimsins veltur á því hvort jafnvægi náist.

SUPERBAD

25.01.2008.

Seth og Evan þrá ekkert meira en að kynnast stelpum áður en þeir halda burt í framhaldsskóla, en til þess þurfa þeir að útvega áfengi fyrir stórveislu kvöldið áður. Ásamt vini með fölsuð skilríki halda þeir af stað í leit að áfengi en þurfa um leið að flýja undan vægast sagt undarlegum lögregluþjónum.

LA VIE EN ROSE

25.01.2008.

Stórbrotinn mynd um viðburðaríka ævi Edith Piaf eftir Oliver Dahan. Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátiðinni í Berlín þar sam hún var opnunarmyndin og Marion Cotillard þykir vinna eftirminnilegaan stórsigur sem hin hæfileikaríka og skrautlega Piaf

Cattle Call

21.01.2008.

Lífið virðist brosa við Richie Ray, hann er ríkur, einhleypur og rekur vel heppnaða stefnumótamiðlun á netinu, “fullkominfyrirmig.com”, en þrátt fyrir það gengur honum ekki sérlega vel í ástum.

Her Best Move

21.01.2008.

Skólaárinn eru erfið og fyrir knattspyrnustúlkuna Söru Davis eru þau sérstaklega erfið. Engin stenst henni snúning á vellinum, enda er hún knúinn áfram af metnaði Gils, föður hennar, sem er þjálfari atvinnuliðs.

Halloween

14.01.2008.

Hinn tíu ára gamli Michael Myers hatar alla í fjölskyldunni nema Laurie, litlu systir sína, en henni vill hann aðeins það besta.

Anna Og Skapsveiflurnar

07.01.2008.

Dag einn vaknar fullkomna stúlkan Anna upp mep einhvern hræðilegan sjúkdóm. Hún er döpur eftirlíking af Marylin Manson og er hræðilega mislynd.

Vacancy

03.01.2008.

Þegar bíllinn bilar langt frá mannabyggðum neyðast David og Amy Fox til að gista á eina hótelinu í grenndinni þar sem ekki er annað til afþreyingar en að horfa á sjónvarpið.

I Think I Love My Wife

03.01.2008.

Framtíðinn blasir við bankamanninum Richard Cooper. Starfsferillinn er flekklaus, hann á ástríka eiginkonu og tvö gullfalleg börn. Það er bara eitt vandamál, honum dauðleiðist!

Næturvaktin

06.12.2007.

Þrír gæfulausir menn sem seint munu eiga skap saman þurfa að vinna hlið við hlið á næturvakt á bensínstöð við Laugaveg. Daníel Sævarsson, þunglyndur læknanemi sem hefur flosnað upp úr námi, lendir í köldu stríði á milli FM hnakkans Ólafs Ragnars og vaktstjórans og erkikommans Georgs Bjarnfreðssonar.

The Secret

06.12.2007.

Þú hefur í hendi þér stórkostlegt alheimsleyndarmál. Það hefur varðveist um aldir, ferðast gegnum hundruðir ára... til að komast til þín. Þetta leyndarmál veitir þér allt - sælu, heisu, auð, sambönd, ást, hamingju... allt sem þú óskar þér.

Sicko

06.12.2007.

Sicko er nýjasta meistarastykki Michael Moore, höfund myndanna Bowling for Columbine og Fahrenheit 9/11, sem er aðsóknarmesta heimildarmynd allra tíma.

Astronaut Farmer

06.12.2007.

Frá barnæsku dreymdi Charles Farmer um að verða geimfari. Hann tók próf í eldflaugafræði, gekk í flugherinn og var valinn í æfingalið sem væntanlegur geimfari.

1408

06.12.2007.

Rithöfundurinn Mike Enslin skrifar hryllingssögur, hann trúir aðeins því sem hann getur séð með eigin augum og hefur skrifað nokkrar metsölubækur þar sem yfirnáttúruleg fyrirbæri eru gerð tortryggileg.

Black Christmas

06.12.2007.

Móðir Billys var vægast sagt ekki dyggðum prýdd, á endanum drap hún föður hans og faldi drengina upp á háalofti til að geta helgað nýju fjölskyldunni tíma sinn.

SYNDIR FEDRANNA

06.12.2007.

Breiðavíkurmálið hefur vart farið framhjá neinum Íslendingi síðan upp komst um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað á upptökuheimilinu á Vestfjörðum.

Búbbarnir – Allt það besta

03.12.2007.

Fjör, grín og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Á þessari DVD útgáfu gefur að líta allt það besta úr þessari frábæru sjónvarpsseríu sem sýnd var á Stöð 2 árið 2006.

Hákarlabeita

03.12.2007.

Fiskurinn Pi hefur tapað aleigunni og fer heim á Rifið til að dvelja hjá fjölskylu sinni. Þar finnur hann ástina en honum til hrellingar hefur yfirgangsamur hákarl einnig augastað á hinni útvöldu.

GALDRABÓKIN

03.12.2007.

Söguhetjan er Alexander, ungur drengur sem þarf að fara í pössun hjá frænku sinni sem rekur gamla verslun í miðbænum. Honum leiðist og fer því að gramsa í gömlu dóti á lagernum og hittir þar fyrir, sér til mikillar undrunnar, gamla uglu sem heitir Ólavía og talandi kött sem segist heita Pan.

Seinfeld - Complete Series

03.12.2007.

Frábært safn sem inniheldur allar 9 seríurnar af hinum sívinsælu þáttum um Seinfeld og félaga.

GRETTIR Í RAUN

26.11.2007.

Grettir tekur stökkið úr teiknimyndunum út í hinni harða heim utan dagblaðsins. En hann kemst fljótlega að því að raunverulegir kettir skemmta sér ekki eins vel og kettir í teiknimyndum og hann á í vök að verjast, jafnt fyrir blóðþyrstum smáhundum sem kröftulegum rökkum.

THE PREMONITION

26.11.2007.

Linda Hanson (Sandra Bullock) á fallegt hús, ástríkan eiginmann og tvær yndislegar dætur. Líf hennar er fullkomið þar til hún fær þær fréttir að Jim, eiginmaður hennar, hafi látist í bílslysi.

HNOTUBRJÓTURINN OG MÚSAKÓNGURINN

26.11.2007.

Bráskemmtilegt ævintýri um óhlýðinn prins sem finnur töfrahnetur og breytir óvart öllum í konungsríkinu í leikföng. Nú veltur það á honum að stöðva músakonunginn illa áður en honum tekst að leggja konungsdæmið undir sig.

VENNI PÁER - SERÍA 1

26.11.2007.

Ný, íslensk gamansería þar sem ýmsir kostulegir karakterar koma við sögu. Venni Páer er einkaþjálfari sem hefur það takmark að koma hinni einu sönnu réttu leið varðandi heilsurækt til skila.

Skoppa og Skrítla í Þjóðleikhúsinu

23.11.2007.

Skoppa og Skrítla eru brosmildar og kátar vinkonur sem allir krakkar eru farnir að þekkja.

Tekinn

23.11.2007.

Auðunn Blöndal, eða Auddi eins og hann er gjarnan kallaður, vakti fyrst athygli í þáttunum 70 mínútur þar sem hann framdi ýmis heimskupör ásamt félögum sínum.

Mýrin

11.10.2007.

Mýrin hefst á því að rannsóknar- lögreglumaðurinn Erlendur er kallaður til í Norðurmýrina. Þar hefur roskinn maður fundist myrtur og í skúffu er mynd af fjögurra ára gamalli stúlku sem tengist miklum fjölskylduharmleik.

Teenage Mutant Ninja Turtles

01.10.2007.

Biðin er loksins á enda. Teenage Mutant Ninja Turtles eru mættir á ný og hafa aldrei verið eins flottir.

Köld Slóð

01.10.2007.

Köld slóð er alíslensk glæpa og spennumynd. Baldur (Þröstur Leó Gunnarsson) er rannsóknar - og æsifréttablaðamaður í Reykjavík.

Spderman 3

01.10.2007.

Það eru þrjú ný illmenni í New York borg, en búningur kóngulóarmannsins virðist vinna gegn honum og hafa sjálfstæðan vilja.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli