Bíó
Kvikmyndadeild Senu á og rekur 4 glæsileg kvikmyndahús.
Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Salirnir eru allir gerðir með það fyrir augum að gesturinn njóti myndarinnar við fullkomnustu aðstæður sem völ er á í dag. Risasýningartjald, hljóðkerfi sem lætur hárin rísa, gott útsýni óháð sætavali og ný tegund stóla sem uppfyllir allar kröfur um gæði. Smárabíó býður upp á allt það besta sem kvikmyndahús getur boðið upp á í heiminum í dag. Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti.
Regnboginn hóf starfsemi sína árið 1980 og var það fyrsta fjölsalabíóið á Íslandi. Bíóið er staðsett í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið á Hverfisgötu 54. Miklar breytingar hafa verið gerðar í Regnboganum síðan og hefur Smárabíó verið haft að leiðarljósi þar. Í fyrsta lagi hafa verið sett inn ný sæti í alla sali (eins sæti og eru í Smárabíói) en sætin þar hafa komið sérstaklega vel út hvað varðar þægindi.
Borgarbíó Akureyri er búið 2 kvikmyndasölum og tekur rúmlega 300 manns í sæti, en við það vinnur á annan tug starfsfólks. Kvikmyndahúsið er eitt fárra frumsýningabíóa utan höfuðborgarinnar og var stofnað fyrir miðja síðustu öld og er því líklega eitt elsta kvikmyndahús á landinu.
Þann 1 maí 2008 tók Sena við rekstri Háskólabíós. 5 salir með 840 sætum er góð viðbót fyrir Senu þar sem nú verður hægt að sýna kvikmyndir Senu samtímis í fleiri kvikmyndahúsum. Sena er nú orðin stærsti rekstraraðili Kvikmyndahúsa hér á land
Smelltu hér til að skoða kvikmyndvefinn midi.is sem veitir daglega uppfærðar upplýsingar um sýningartíma, kvikmyndir, fréttir og margt margt fleira.
Verðskrá:
Smárabíó
Almennt verð 1150
Barnaverð 8 ára og yngri 650
Eldri borgarar 850
Öryrkjar 850
Lúxus 2150
3D almennt verð 1400
3D barnaverð 8 ára og yngri 900
Tilboðsbíó um helgar, valdar sýningar 600
Þriðjudagstilboð valdar myndir 600
Regnboginn
Almennt verð 1150
Barnaverð 8 ára og yngri 650
Eldri borgarar 850
Öryrkjar 850
Tilboðsbíó um helgar, valdar sýningar 600
Þriðjudagstilboð valdar myndir 600
Háskólabíó
Almennt verð 1150
Barnaverð 8 ára og yngri 650
Eldri borgarar 850
Öryrkjar 850
3D almennt verð 1400
3D barnaverð 8 ára og yngri 900
Tilboðsbíó um helgar, valdar sýningar 600
Þriðjudagstilboð valdar myndir 600